Innlent

Var ekki í öryggisbelti þegar hann fór útaf veginum og lést

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Banaslysið varð á Örlygshafnarvegi sem liggur að Látrabjargi.
Banaslysið varð á Örlygshafnarvegi sem liggur að Látrabjargi. Vísir/Vilhelm

Ökumaðurinn sem lést þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á bröttum vegi nærri Látravík var ekki í öryggisbelti þegar slysið átti sér stað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Slysið átti sér stað 12. nóvember síðastliðinn. Ökumaðurinn, 73 ára karlmaður, var á breyttum Toyota Land Cruiser, nýskráðum 1997, á Örlygshafnarvegi á leið í átt að Látravík. 

Í skýrslunni segir að miðja vegu niður brattan veg hafi hann misst stjórn á bifreiðinni þannig að hún fór út af veginum og niður fyrir hann, þar sem hún valt.

Bifreiðin fannst ekki fyrr en 14. nóvember og var ökumaðurinn látinn þegar komið var að. 

Hann var einn í bifreiðinni og dánarorsök sögð ofkæling. Hann hafði hins vegar einnig hlotið höfuð- og brjóstholsáverka og rannsóknarnefndin telur mögulegt að maðurinn hefði lifað slysið af ef hann hefði verið spenntur í öryggisbelti.

Bifreiðin, sem var skráð torfærubifreið, var óskoðuð þegar slysið átti sér stað og þá voru ummerki um nýlega viðgerð á hemlum, þar sem skipt hafði verið um alla diska, klossa og þrjár hemladælur af fjórum. Viðgerðinni virðist hafa verið ólokið en ósennilegt að það hafi orsakað slysið.

Í skýrslunni kemur fram að ökumaðurinn hafi átt við ýmis heilsufarsvandamál að stríða og að ökuhæfi hans hafi sennilega verið skert vegna þess. Hann var með gild ökuréttindi og staðkunnugur. 

Í ábendingum rannsóknarnefndarinnar segir meðal annars eftirfarandi:

„Ökumaðurinn sem lést var ekki spenntur í öryggisbelti. Nefndin telur mögulegt að hann hefði lifað slysið af hefði hann verið spenntur í öryggisbelti. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur mikilvægt að brýna fyrir ökumönnum og farþegum að nota ávallt öryggisbelti, hvort sem verið er að fara styttri eða lengri vegalengdir. Vanhöld á notkun öryggisbelta eru ein helsta orsök banaslysa í umferðinni.“

Skýrsla rannsóknarnefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×