Innlent

Skjálfti 3,3 að stærð skammt frá Hvera­dölum

Atli Ísleifsson skrifar
Skjálftinn fannst í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu.
Skjálftinn fannst í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu. Veðurstofan

Skjálfti af stærðinni 3,3 varð  um einum kílómetra austur af Skíðaskálanum í Hveradölum klukkan 13:34 í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvársérfræðingi Veðurstofunnar. 

Þar segir að tilkynningar hafi borist að skjálftinn hefði fundist bæði í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×