Þóttist ekki skilja ensku til að sleppa við treyjuskipti við Ástrala Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. desember 2022 13:31 „Je ne parle pas anglais.“ getty/Marc Atkins Leikmaður ástralska landsliðsins hefur greint frá sérstakri ástæðu þess að hann skiptist ekki á treyjum við Olivier Giroud eftir leikinn gegn Frakklandi á HM í Katar.
Frakkar unnu öruggan sigur á Áströlum, 4-1, í fyrsta leik sínum í D-riðli heimsmeistaramótsins. Ástralska liðið náði forystunni en það franska svaraði með fjórum mörkum. Giroud skoraði tvö þeirra. Eftir leikinn vildi Jason Cummings, framherji ástralska liðsins, skiptast á treyjum við Giroud. Sá franski brá hins vegar á það ráð að þykjast ekki skilja ensku til að forðast að þurfa að afhenda Cummings treyjuna sína. Jason Cummings og félagar hans í ástralska landsliðinu komust í sextán liða úrslit á HM þar sem þeir töpuðu naumlega fyrir heimsmeisturum Argentínu.getty/Robbie Jay Barratt Giroud spilaði níu ár á Englandi og ætti því að vera nokkuð sleipur í enskunni, allavega nógu góður til að skilja beiðni Cummings. En hann hafði greinilega engan áhuga á að láta hann fá treyjuna sína. Cummings er fæddur og uppalinn í Skotlandi. Hann lék með yngri landsliðum Skota og tvo leiki fyrir A-landsliðið áður en hann ákvað að spila fyrir Ástrali. Móðir hans er fædd í Perth í Ástralíu og því átti hann kost á því að spila fyrir ástralska landsliðið. Cummings lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ástralíu í september og skoraði í honum, 2-0 sigri á Nýja-Sjálandi. Leikurinn gegn Frakklandi var sá eini sem hann spilaði á HM.
HM 2022 í Katar Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira