Fótbolti

Dreymir um að sjá framherjapar Ís­lands í ensku úr­vals­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen fagna hér mörkum í síðasta glugga en þeir skoruðu fimm mörk saman. 
Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen fagna hér mörkum í síðasta glugga en þeir skoruðu fimm mörk saman.  Vísir/Anton

Landsliðsframherjarnir Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen voru báðir á skotskónum í síðasta landsliðsglugga og þeir komu sjóðheitir til móts við sín félagslið eftir hann.

Báðir hafa í framhaldinu verið að raða inn mörkum fyrir sín lið, Orri Steinn fyrir spænska liðið Real Sociedad en Andri Lucas fyrir Blackburn í ensku B-deildinni.

Arnar ræddi framherjaparið á blaðamannafundi í dag. Hann segir að þrátt fyrir að það sé að koma upp gullkynslóð íslenskra framherja í dag þá verði það ekki auðvelt fyrir þá að slá út þá Orra Stein og Andra Lucas.

Arnar er ekki aðeins sáttur með framherjana tvo heldur hefur hann háleit markmið fyrir þá báða.

„Það er mjög ánægjulegt hversu margir strákar hjá okkur komu úr glugganum og voru bara heilir. Við sjáum alls konar vesen alls staðar úti í svona stórum heimi þar sem menn eru að meiðast. Við höfum ekki fengið nein vöðvameiðsli þannig að það sýnir það að við erum að rótera rétt í þessum glugga,“ sagði Arnar

„Við höfum fengið Orra sjóðandi heitan sem kom inn í síðasta glugga með ekkert blússandi sjálfstraust. Ég lít alltaf svo á að liðin og landsliðin séu saman með það verkefni að gera leikmanninn betri. Í þessum glugga var fullt af leikmönnum hjá okkur sem komu til baka og voru sterkir,“ sagði Arnar og nefndi að auki þá Mikael Egil Ellertsson og Ísak Bergmann Jóhannesson sem báðir hafa verið að gera flotta hluti með liðum sínum á Ítalíu og í Þýskalandi.

„Mikael Egill fór að skora með Genoa. Ísak átti tvo stórleiki og byrjaði í hverjum einasta leik fyrir Köln,“ sagði Arnar en hann vill sérstaklega sjá þá Orra og Andra komast enn lengra.

„Ég á mér þá von og draum um að við sjáum báða senterana komast í ensku úrvalsdeildina fyrr en varir og vonandi spili þeir þá báðir fyrir mitt lið, Manchester United. Ekki veitir af,“ sagði Arnar í léttum tón en tók það líka fram að hann væri ekki að setja neina pressu á það en hann leyfði sér að dreyma um að þeir taki fleiri skref upp metorðastigann.

Andri Lucas Guðjohnsen hefur skorað 9 mörk í 13 leikjum í ensku B-deildinni en með íslenska landsliðinu er hann þegar kominn með 12 mörk í 43 leikjum, þar af tvö mörk í síðasta glugga.

Orri Steinn Óskarsson hefur skorað 4 mörk í 12 leikjum í öllum keppnum með Real Sociedad á leiktíðinni en með íslenska landsliðinu er hann þegar kominn með 12 mörk í 22 leikjum, þar af þrjú mörk í síðasta glugga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×