Innlent

Rúmlega tvö þúsund sæðisskammtar úr Fróða

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fróði og aðrir hrútar voru kynntir í máli og myndum í Hrútaskránni, sem kom út í nóvember.
Fróði og aðrir hrútar voru kynntir í máli og myndum í Hrútaskránni, sem kom út í nóvember. Halla Eygló Sveinsdóttir

Hrúturinn Fróði frá Bjargi í Miðfirði var vinsælasti hrúturinn á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands yfir fengitímann, sem var að ljúka. Sæði úr Fróða var sent í rúmlega tvö þúsund ær.

Sauðfjársæðingar stóðu yfir frá 1. desember til 20. desember hjá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands í Þorleifskoti í Laugardælum skammt frá Selfossi. Á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands segir að sæðingar hafi gengið vel fram til 16. desember en þá versnaði færð og veður og sendingar misfórust.

Alls var sent út sæði í 17.000 ær og ætla má miðað við nýtingu fyrri ára að um 11.000 ær hafi verið sæddar frá stöðinni. Mest notkun var á Fróða frá Bjargi í Miðfirði en sæði í 2.130 ær var sent úr honum.

Kraftur frá Skarði í Landsveit var með útsent sæði í 1.415 ær, Angi frá Borgarfelli í Skaftártungu var með útsent sæði í 1.215 ær, Askur frá Kirkjubæjarklaustri með útsent sæði í 1.065 ær og Gullmoli frá Þernunesi var með útsent sæði í 1.045 ær.

Ekki tókst að anna eftirspurn eftir sæði úr Anga og Gullmola.

Á heimasíðu Búnaðarsambandsins kemur einnig fram að lítil eftirspurn var eftir sæði úr mörgum af eldri hrútunum á Sauðfjársæðingastöðinni, bændur hafi verið mun spenntari fyrir nýju hrútunum, sem þýðir að ekki má slaka á að fá nýja hrúta á stöðina og huga vel að endurnýjun.

Til upplýsingar er rétt að geta þess að ær ganga á 16 til 17 daga fresti frá nóvember og fram eftir vetri. Frjósemi þeirra er mest framan af þessu tímabili, þ.e.a.s. á hefðbundnum fengitíma í desember. Ærnar eru blæsma í u.þ.b. 2 sólarhringa en egglosið verður 24-30 klukkustundir eftir að beiðslið byrjar og eggið er frjótt í allt að 24 klukkustundir. Sæðið lifir í allt að 24 klukkustundir í leghálsi og eggjaleiðurum ánna.

Mest notkun var á Fróða frá Bjargi í Miðfirði en sæði í 2.130 ær var sent úr honum.Úr Hrútaskránni 2022/2023



Fleiri fréttir

Sjá meira


×