Tæplega 90 prósent uppruna íslenskrar orku seld úr landi Heimir Már Pétursson skrifar 11. janúar 2023 12:16 Þótt nánast öll raforka sem framleidd er á Íslandi sé endurnýjanleg græn orka voru aðeins 13 prósent orkunnar það á pappírunum árið 2021. Vísir/Vilhelm Þótt nánast öll orka sem framleidd er á Íslandi teljist græn endurnýjanleg orka er hún það ekki á pappírunum. Aðeins 13 prósent raforku eru rakin til endurnýjanlegra orkugjafa en 63 prósent til kola og olíu og 24 prósent til kjarnorku. Íslensk fyrirtæki og heimili þurfa nú að greiða sérstaklega fyrir að geta sagt að raforkan sem þau nota sé græn orka.
Þessar tölur um uppruna raforku á Íslandi árið 2021 má finna hjá Orkustofnun. Þetta er vegna þess að íslensk orkufyrirtæki hafa selt leyfi til erlendra orkufyrirtækja til að kalla hluta af óhreinni orku þeirra græna orku og hafa þau stundum verið kölluð aflátsbréf. Þannig getur til dæmis þýskt kolaorkuver keypt upprunavottorð af Landsvirkjun og selt evrópskum viðskiptavinum sínum græna orku á pappírunum. Á móti taka Landsvirkjun eða önnur orkufyrirtæki á móti óhreinni orku í bókhaldi sínu. Þess vegna voru um 63 prósent af allri raforku sem seld var á Íslandi árið 2021 óhrein orka. Íslendingar teljast því stórnotendur á orku sem framleidd er með kolum og kjarnorku þótt engin slík orka sé framleidd á Íslandi. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra er að láta gera samantekt á umfangi viðskipta með upprunavottorð raforku.Vísir/Vilhelm Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að þetta mætti rekja til samningsins um evrópska efnahagssvæðið. Von væri á nýrri úttekt á þessum viðskiptum sem hann hefði óskað eftir. „Það breytir engu um að öll orkan okkar er græn. Þetta er eitthvað fyrirkomulag sem á að ýta undir að fjármunir séu settir í að framleiða meira af grænni orku. Það er hugsunin á bakvið þetta,“ sagði Guðlaugur Þór. Íslensk orkufyrirtæki leggi aukna áherslu á sölu upprunavottorða en tekjur af þeim voru um 850 milljónir samkvæmt svari iðnaðarráðherra til þingmanns Miðflokksins árið 2018. Umhverfisráðherra segir orkufyrirtækin nú þegar hafa umtalsverðar tekjur af sölu upprunavottorða til evrópskra orkufyrirtækja sem framleiða orku með til dæmis kolum. „Nú eða að þau verða þá að kaupa sér svona syndaaflausn. Syndaaflausnin er keypt af grænum orkuframleiðanda sem á að nota peningana til að framleiða meiri græna orku,“ segir Guðlaugur Þór. En á sama tíma og evrópsk orkufyrirtæki geta kastað syndum sínum á bakvið sig með þessum hætti, sitja íslensku orkufyrirtækin uppi með syndirnar á pappírunum og þurfa að koma þessari óhreinu orku í verð. Svarið er að þau stefna nú að því að selja íslenskum fyrirtækjum og heimilum græn upprunavottorð þannig að þau greiði þá hærra verð fyrir græna orkuvottun; fyrir orku sem er græn hvort sem borgað er fyrir vottunina eða ekki. Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra Orku náttúrunnar segir eftirspurnina eftir grænni orku ráða verðinu á upprunavottorðum.Vísir/Vilhelm Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra Orku náttúrunnar segir að þetta muni leiða til hærra orkuverðs til þeirra sem vilji vottun. „Eins og staðan er núna eru þetta fimm til fimmtán prósent hækkanir sem maður sæi fyrir á næstu mánuðum og örfáu árum. Svo myndi þróunin fara eftir því hvernig verðið á upprunaábyrgðunum þróast í Evrópu,“ segir Berglind Rán Þótt aðeins 13 prósent uppruna íslenskrar orku teljist endurnýjanleg í dag segir hún hægt að svara mögulegri eftirspurn allra álveranna og annarra fyrirtækja í landinu fyrir upprunavottun. Yfirleitt sé vottun fyrir tiltekið magn orku selt til skamms tíma og því hægt að selja til nýrra kaupenda. „Þangað til fyrir ekki löngu síðan var það bara gott hjá fyrirtækjum sérstaklega að vera með endurnýjanlega orku en ekki endilega nauðsynlegt. Nú er það farið að verða miklu krítískara hjá fyrirtækjum,“segir Berglind Rán Ólafsdóttir.
Orkumál Þriðji orkupakkinn Landsvirkjun Umhverfismál Efnahagsmál Tengdar fréttir Íslensk orkufyrirtæki selja mengunaraflátsbréf Opinberlega er uppruni raforku á Íslandi 90 prósent kominn frá jarðefnaeldsneyti og kjarnorku, þótt nær öll orka hér á landi sé framleidd með endurnýjanlegum orkulindum. 19. febrúar 2020 19:30 Tafarlaust þurfi að tryggja raforku og heitt vatn til framtíðar Samorka kallar eftir tafarlausum aðgerðum í ályktun aðalfundar, sem fram fór í Hörpu í dag. Tryggja þurfi næga raforku og heitt vatn til framtíðar, svo hægt verði að mæta fólksfjölgun, nýjum atvinnutækifærum, aukinni rafvæðingu samfélagsins, vályndu veðri og ekki síst metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum. 15. mars 2022 14:09 Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa til öflunar meiri orku til að geta staðið við markmið um orkuskipti. Olíubrennsla að undanförnu vegna skorts á umfram raforku þurrki út árangur rafknúinna bifreiða í loftslagsmálum frá árinu 2010. 1. febrúar 2022 19:20 Skilaði þúsund upprunaábyrgðum til forsætisráðherra í dag: Vill að Ísland hætti að selja upprunaábyrgðir Belgískt raforkufyrirtæki skilaði í dag þúsund upprunaábyrgðum til Íslands. Með því vill fyrirtækið vekja Íslendinga til umhugsunar um afleiðingar orkustefnu stjórnvalda. 7. ágúst 2020 20:30 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Íslensk orkufyrirtæki selja mengunaraflátsbréf Opinberlega er uppruni raforku á Íslandi 90 prósent kominn frá jarðefnaeldsneyti og kjarnorku, þótt nær öll orka hér á landi sé framleidd með endurnýjanlegum orkulindum. 19. febrúar 2020 19:30
Tafarlaust þurfi að tryggja raforku og heitt vatn til framtíðar Samorka kallar eftir tafarlausum aðgerðum í ályktun aðalfundar, sem fram fór í Hörpu í dag. Tryggja þurfi næga raforku og heitt vatn til framtíðar, svo hægt verði að mæta fólksfjölgun, nýjum atvinnutækifærum, aukinni rafvæðingu samfélagsins, vályndu veðri og ekki síst metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum. 15. mars 2022 14:09
Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa til öflunar meiri orku til að geta staðið við markmið um orkuskipti. Olíubrennsla að undanförnu vegna skorts á umfram raforku þurrki út árangur rafknúinna bifreiða í loftslagsmálum frá árinu 2010. 1. febrúar 2022 19:20
Skilaði þúsund upprunaábyrgðum til forsætisráðherra í dag: Vill að Ísland hætti að selja upprunaábyrgðir Belgískt raforkufyrirtæki skilaði í dag þúsund upprunaábyrgðum til Íslands. Með því vill fyrirtækið vekja Íslendinga til umhugsunar um afleiðingar orkustefnu stjórnvalda. 7. ágúst 2020 20:30