Haldinn var bæjarfundur í gær þar sem forsvarsmenn lestarfyrirtækisins Norfolk Southern mættu og ræddu við íbúa.
„Það er ekki örugg hérna,“ sagði einn íbúanna. Hann bað forsvarsmenn fyrirtækisins um að hjálpa fólki við að komast af svæðinu.
Fyrirtækið er að láta fjarlægja mikið af jarðvegi þar sem lestarslysið varð en í frétt AP fréttaveitunnar segir að ekki hafi verið rætt um það að fyrirtækið keypti heimili fólks og flyttu það á brott. Blaðamaður fréttaveitunnar segir fáa íbúa hafa virst ánægða eftir fund gærdagsins.
Íbúar segjast sérstaklega óttaslegnir yfir því að slysið muni valda börnum þeirra og afkomendum vandræðum til lengri tíma. Þegar einn af stjórnendum EPA sagði að rannsóknir sýndu ítrekað að andrúmsloftið við Austur-Palestínu væri ekki skaðlegt, kölluðu íbúar: „Ekki ljúga að okkur“ eða hlógu.
Embættismenn segja þó að mælingar sýni að mengun finnist ekki í vatni eða lofti við bæinn. Starfsmenn Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna (EPA) tilkynntu í gær að til stæði að kanna hvort díoxín hafi nokkuð borist í umhverfið við Austur-Palestínu.
Litlar líkur eru þó taldar á því að svo sé en um er að ræða lífræn mengunarefni sem eyðast hægt og geta valdið heilsukvillum yfir langt tímabil.
Rannsakendur segja að eldurinn sem kviknaði eftir að lesti fór af sporunum hafi brætt mikilvæga álventla á tönkunum sem voru fullir af eiturefnum og hafa forsvarsmenn annarra lestarfyrirtækja verið varaðir við því að kanna hvort sambærilega galla megi finna á lestarvögnum þeirra.
Brætt álið kom í veg fyrir að ventlarnir virkuðu sem skyldi og það hafi gert slysið verra. Þessi galli leiddi til þess að ákveðið var að gera gat á tankana og brenna efnin. Þessi bruni sendi dökkan reyk langt upp í himinninn og var í kjölfarið ákveðið að flytja íbúa Austur-Palestínu á brott um tíma.