Ragnar fékk að hætta hjá Haukum Sindri Sverrisson skrifar 7. mars 2023 15:01 Díana Guðjónsdóttir er nú tekin við af Ragnari Hermannssyni sem aðalþjálfari Hauka, eftir að hafa verið Ragnari til aðstoðar. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Ragnar Hermannsson hefur látið gott heita sem þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Haukum. Hann óskaði sjálfur eftir því að hætta, af persónulegum ástæðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu Hauka á Facebook þar sem greint er frá því að Díana Guðjónsdóttir, sem verið hefur Ragnari til aðstoðar, muni stýra Haukum út tímabilið. Hún fær Halldór Ingólfsson, þriðja besta leikmann aldarinnar í efstu deild karla, sér til aðstoðar. Ragnar lét vita af því um síðustu áramót að hann vildi hætta störfum hjá Haukum í lok leiktíðar. Eftir sigra gegn Selfossi í febrúar og HK í janúar eru Haukakonur hins vegar fjórum stigum frá fallsæti í Olís-deildinni, þegar þrjár umferðir eru eftir, og svo gott sem búnar að tryggja sér áframhaldandi veru í deildinni. Ragnar bað því um að hætta strax og varð handknattleiksdeild Hauka við þeirri ósk, og er honum þakkað kærlega fyrir hans framlag fyrir félagið. Tekið er fram að hann muni áfram sinna afreksþjálfun hjá Haukum líkt og undanfarið. Díana og Halldór eiga fyrir höndum bikarleik í Laugardalshöll í næstu viku því þá mæta Haukar liði Vals í undanúrslitum Powerade-bikarsins, og komist liðið í úrslitaleikinn fer hann fram á sama stað laugardaginn 18. mars. Haukar fara svo að öllum líkindum í sex liða úrslitakeppni Olís-deildarinnar í vor. Fyrsti leikur Hauka eftir brotthvarf Ragnars er hins vegar á fötudaginn þegar Haukar taka á móti sjóðheitu liði ÍBV sem komið er á topp Olís-deildarinnar.
Haukar Olís-deild kvenna Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Sjá meira