Á leið aftur til Úkraínu eftir þjálfun í Bretlandi Samúel Karl Ólason skrifar 27. mars 2023 15:36 Úkraínskur hermaður í Bretlandi, þar sem hann og aðrir lærðu á Challenger 2 skriðdrekana. EPA/HOLLIE ADAMS Bretar eru búnir að þjálfa úkraínska hermenn í notkun Challenger 2 skriðdreka, sem framleiddir eru í Bretlandi. Hermennirnir og skriðdrekarnir eru nú á leið til Úkraínu. Þjóðverjar hafa einnig að afhent Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka.
Þjálfunin hefur staðið yfir í nokkrar vikur en Úkraínsku hermennirnir voru fluttir til Bretlands skömmu eftir að Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti að Bretar myndu, fyrstir bakhjarla Úkraínumanna, senda þeim vestræna skriðdreka. Það var í byrjun febrúar en um er að fræða fjórtán skriðdreka. Bretar eru einnig að senda Úkraínumönnum tuttugu Bulldog bryndreka sem hannaðir eru til að flytja hermenn um hættuleg svæði og þrjátíu AS-90 stórskotaliðsvopn sem ganga undir eigin vélarafli. Sjá einnig: Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Guardian hefur eftir yfirmanni þjálfunarinnar að Úkraínumennirnir hafi staðið sig betur en hann átti von á og efast hann ekki um að hermennirnir muni nota skriðdrekana vel við að verja Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Bretlands birti í gær heimildarmynd um þjálfun úkraínsku hermannanna. Þar er farið yfir þjálfunina, í hverju hún felst og hvernig hermönnunum gekk. Hermennirnir þurftu ekki eingöngu að læra að nota skriðdrekana, að stýra þeim og að skjóta úr þeim, heldur þurftu þeir einnig að læra að viðhalda þeim og gera við þá, auk annars. Áhugasamir geta séð myndina í spilaranum hér að neðan. Þýskir skriðdrekar einnig í Úkraínu Þýski herinn hefur einnig afhent Úkraínumönnum vestræna skriðdreka. Samkvæmt heimildum Spiegel hafa átján Leopard 2 skriðdrekar verið afhentir Úkraínumönnum en úkraínskir hermenn hafa einnig verið þjálfaðir í notkun þeirra í Þýskalandi og í Póllandi. Pólverjar voru fyrstir til að senda skriðdreka af þessari gerð til Úkraínu en hergagnaflutningarnir hafa gengið mun hægar en ráðamenn í Úkraínu og bakhjarlar þeirra vonuðu. Spiegel segir einnig að fjörutíu Marder bryndrekar hafi verið sendir til Úkraínu. Nokkuð langt er síðan yfirvöld í Þýskalandi og Bandaríkjunum tilkynntu að vestrænir bryndrekar yrðu sendir til Úkraínu en það var áður en ákveðið var að senda skriðdreka. Þjóðverjar hafa verið að senda Úkraínumönnum Marder bryndreka en Bandaríkjamenn hafa sent Bradley bryndreka. Þar að auki hafa Frakkar sent tíu AMX-10 bryndreka sem gætu flokkast sem léttir skriðdrekar, þar sem þau eru ekki á beltum heldur hjólum og eru ekki varin þykkri brynvörn. Farartækin bera hins vegar fallbyssu eins og skriðdrekar. Sjá einnig: Senda vestræna bryndreka til Úkraínu Talið er að Úkraínumenn vilji reyna að nota þessi hergögn og þá hermenn sem hafa verið þjálfaðir í notkun þeirra til gagnárása í vor. Úkraínumenn hafa fengið mikinn fjölda skriðdreka sem þróaðir voru á tímum Sovétríkjanna frá öðrum ríkjum Austur-Evrópu, og Rússum. Þeir hafa þó frá upphafi innrásar Rússa beðið um vestræna skriðdreka og önnur vestræn vopn. Á blaði eru þessir skriðdrekar betri en þeir rússnesku. Þar að auki eru aðrar ástæður fyrir því að Úkraínumenn hafa viljað og þurfa vestræna skriðdreka. Það er lítið sem bendir til þess að Rússar muni láta af innrás þeirra á næstunni og er búist við því að átökin muni harðna þegar vorið nálgast. Þessar hersveitir þurfa skrið- og bryndreka, auk annarra vopna og Úkraínumenn geta ekki notast við gamla sovéska skriðdreka að eilífu. Sjá einnig: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Varahlutir í þessa gömlu skriðdreka eru þar að auki ekki framleiddir í þeim ríkjum sem styðja við bakið á Úkraínu og á það sama við skotfæri. Úkraínumenn munu þurfa alfarið að snúa sér að vestrænum hergögnum.
Úkraína Bretland Þýskaland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Frakkland Tengdar fréttir NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands. 26. mars 2023 16:10 Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani. 23. mars 2023 16:03 Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. 21. mars 2023 19:41 Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. 21. mars 2023 17:09 Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. 17. mars 2023 14:29 Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. 16. mars 2023 10:08 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sjá meira
NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands. 26. mars 2023 16:10
Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani. 23. mars 2023 16:03
Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. 21. mars 2023 19:41
Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. 21. mars 2023 17:09
Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. 17. mars 2023 14:29
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. 16. mars 2023 10:08