Slökktu fjölda gróðurelda síðastliðinn sólarhring Árni Sæberg skrifar 15. apríl 2023 08:24 Slökkviliði gekk vel að slökkva þá gróðurelda sem kviknuðu síðastliðinn sólarhring. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Töluverður erill var hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn sólarhring. Dælubílar fóru í fimm útköll vegna gróðurelda, sem flestir kviknuðu miðsvæðis.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var um minniháttar sinubruna að ræða sem gekk vel að slökkva. Þeir hafi kviknað við Landspítalann við Hringbraut, við Hlíðarenda og í Vatnsmýrinni. Þá segir hann að áfram verði hætta á gróðureldum vegna mikillar þurrkatíðar á höfuðborgarsvæðinu en að henni fari senn að ljúka. „Við bíðum bara eftir rigningunni.“ Í færslu á Facebooksíðu slökkviliðsins segir að erilsömum sjúkraflutningasólarhringi sé lokið. Farið hafi verið í 135 sjúkraflutninga og þar af 54 forgangsflutninga. „Spurning hvort góða veðrið í gær hafi kynnt undir djammpúkann hjá fólki því nóttin tengdist svolítið skemmtanalífinu. En sem betur fer voru það meira og minna minniháttar útköll,“ segir í færslunni. Að sögn varðstjóra var farið í 25 sjúkraflutninga eftir miðnætti, flesta í miðbæ Reykjavíkur þar sem fólk sletti úr klaufunum í nótt. Það sé óvenjumikið. „En það er samt minna en síðustu helgi, páskarnir voru mjög drjúgir í þessu,“ segir varðstjórinn.
Slökkvilið Gróðureldar á Íslandi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Flugvél fór út af brautinni á Hólmsheiði Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira