Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri peningastefnu sitja fyrir svörum á opnum fundi Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Efni fundarins er ný skýrsla peningastefnunefndar Seðlabankans til Alþingis.
Verðbólga mælist nú 9,9 prósent sem Ásgeir segir vonbrigði.
„Það olli mér miklum vonbrigðum og sérstaklega olli vonbrigðum að fasteignaverð sé enn að leggja til verðbólgunnar. Það stafar að einhverju leiti af því að framboð hefur aldrei haldið í við eftirspurn frá Hruni, byggingargeirinn fór illa og það komu mörg ár þar sem fólkinu fjölgaði í landinu en ekki var byggt í neinu mæli. Við erum að súpa seyðið af því,“ sagði Ásgeir í upphafi fundarins.
Enn meira aðhald þurfi í ríkisfjármálum
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2024 til 2028 var kynnt í lok mars og eru þar ýmis gjöld og skattar hækkaðir til að vinna á verðbólgunni. Fjármálaráð gagnrýndi hins vegar ríkisstjórnina fyrir að minnka ekki útgjöld ríkissjóðs enn meira og áætlar ríkisstjórn að ríkissjóður verði rekinn með halla til 2027.
Ásgeir tekur undir með fjármálaráði.
„Við viljum sjá meira aðhald í ríkisfjármálum. En á móti kemur líka að það er erfiðara að reka ríkissjóð.Það er erfitt að ætla að vera með snöggar breytingar því á sama tíma liggur við að það er þörf á töluverðum fjárfestingum. Við getum ekki rekið þessa ferðaþjónustu áfram með þetta vegakerfi en við höfum viljað sjá meira og meira aðhald,“ segir Ásgeir.
Bindur vonir við að vinnumarkaðurinn taki ábyrgð
Fjármálaáætlunin sé þó skýrt merki um að ríkisstjórnin sé meðvituð um vandann og byrjuð að vinda ofan af honum.
„Ég vona að þau herði á þessu í næstu fjárlögum. Núna bíðum við eftir vinnumarkaðnum. Ég bind miklar vonir við næsta þing ASÍ að það samband verði aftur leiðandi og vinnumarkaðurinn taki ábyrgð líka þannig að við getum unnið þetta saman,“ segir Ásgeir en síðasti dagur 45. þings ASÍ fer fram í dag og verður kjörin ný forysta á fundi dagsins.