Brjóstapúðarnir sökudólgurinn í tveggja ára veikindastríði Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 10. maí 2023 21:59 Eftir að Rakel lét fjarlægja púðana og endurheimti heilsu sína hefur hún beitt sér fyrir því að auka meðvitund í samfélaginu um brjóstapúðaveiki og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Dæmi eru um að konur hafi hætt við brjóstastækkunaraðgerð þrátt fyrir að eiga bókaðan tíma eftir að hafa heyrt sögu Rakelar. Vísir/Einar Ung kona endurheimti heilsu sína og lífsneista eftir að hún lét fjarlægja sílíkonpúða sem höfðu gert hana fárveika í tvö ár. Nú reynir hún að vekja fólk til vitundar um brjóstapúðaveiki (e. Breast implant illness).
Rakel Orradóttir lét fyrst græða í sig sílíkonpúða árið 2010 eða þegar hún var 22 ára. Mikill örvefur myndaðist í kringum þá púða, sérstaklega í vinstra brjóstinu og sannfærði læknir hana um að skipta um púða. Eftir aðgerðina fór hún að kenna sér meins. „Fyrstu einkennin myndi ég segja að væri þreyta, ofboðsleg þreyta og slappleiki, sérstaklega eftir æfingar. Ég hélt ég þyrfti bara að borða meira, sofa meira eða drekka meira vatn og fór bara í allar þessar grunnstoðir en ekkert virkaði og ég varð bara verri og verri. Þá byrjaði snjóbolti að rúlla af alls konar kvillum og veikindum.“ Of verkjuð til að hneppa buxunum Það fjaraði hratt undan heilsunni, hún léttist, fékk mikið hárlos og sveppasýking í húð var tíður gestur. „Ofboðslegur slappleiki reglulega og þreytuköst. Stundum þurfti ég bara að sofna alveg sama hvar ég var. Ég fékk verkjaköst í alla liðina, alveg svakalega, ég gat stundum ekki hneppt buxunum mínum af því að ég var svo aum í úlnliðum, höndum og hnjám.“ Rakel vissi ekki að hún væri haldin brjóstapúðaveiki og gekk á milli lækna í von um að finna rót vandans. Á einhverju tímabili greindu læknar hana með iðrabólgu en einkennin héldu áfram í tvö ár. Eins og ný kona eftir að púðarnir voru fjarlægðir Eftir að fólk í hennar innsta hring benti henni á að púðarnir gætu verið sökudólgurinn ákvað hún að láta fjarlægja þá í mars, enda hafði hún engu að tapa, slíkur var þungi veikindanna og hún örvæntingarfull að ná aftur heilsu. „Ég er allt önnur. Ég fékk heilsuna mína til baka, ég fékk svolítið bara líf mitt til baka. Ég er full af orku allan daginn og ég hef ekki ennþá fengið eitt einasta þreytukast og það eru rúmar átta vikur frá aðgerð,“ segir Rakel skælbrosandi. Hún varar aðra við því að tengja virði sitt brjóstastærðinni. „Þegar ég er 22 ára ung lítil Rakel, þá var ég með lítil brjóst, ég veikist svo og er með barn á brjósti og missi mín litlu brjóst og þau bara hurfu alveg og ég hefði þurft að einhver hefði komið til mín og sagt mér hversu falleg ég væri bara eins og ég væri, að brjóstin mín væru ekki virðið mitt. Það er eitthvað sem ég held að konur þurfi að heyra.“ Rakel segir sjálfstraustið hafa vaxið þegar hún fór að kynnast sjálfri sér betur og fór að leggja vinnu í að byggja sig upp. „Það eru um ellefu ár síðan ég fékk mína fyrstu púða og þá var ég lítil og óörugg og vissi ekki hver ég var, ég vissi ekki fyrir hvað ég stóð eða hver mín gildi í lífinu voru og ég fylgdi bara einhverri staðalímynd,“ segir Rakel um aðdraganda þess að hún ákvað að leggjast undir hnífinn upphaflega. Konur hafa hætt við aðgerð eftir frásögn Rakelar Eftir að Rakel lét fjarlægja púðana og endurheimti heilsu sína hefur hún beitt sér fyrir því að auka meðvitund í samfélaginu um brjóstapúðaveiki og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa en af líkamstjáningu Rakelar þegar hún lýsti viðbrögðunum var augljóst að skilaboðin sem hún hefur fengið hafa snert hana djúpt. „Veistu það, ég er búin að fá svo mikið af fallegum skilaboðum frá konum sem hafa annað hvort verið að ganga í gegnum það sama eða eru að átta sig á því að þetta sé mögulega eitthvað sem er að hrjá þær.“ Enn aðrar hafa þá átt bókaðan tíma í brjóstastækkunaraðgerð en hætt við vegna sögu Rakelar. „Ég er búin að fá margar þakkir frá konum og falleg skilaboð og ég gæti eiginlega farið að gráta sko, ef ég myndi fara í gegnum öll þessi skilaboð og hvernig konur eru að treysta mér fyrir sinni sögu. Þetta er bara ofboðslega dýrmætt að finna að ég er ekki ein, ég er alls ekki ein og það eru fleiri sem er búin að ganga í gegnum þetta og mér finnst einhvern veginn allir vera tilbúnir til að öskra þetta með mér.“
Heilsa Lýtalækningar Tengdar fréttir Rakel Orra segir litlu brjóstin hafa verið lykilinn að heilsunni „Brjóstin skipta ekki máli ef þú hefur heilsuna þína,“ segir Rakel Orradóttir, markþjálfi og áhrifavaldur, sem endurheimti heilsuna eftir að hún lét fjarlægja sílíkonpúða úr brjóstunum á sér fyrir rúmum sjö vikum síðan. 3. maí 2023 10:01 „Þessir brjóstapúðar eru baneitraðir“ Ásta Erla Jónasdóttir markþjálfi hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum frá því að hún stofnaði síðuna Náttúruleg heilsuvegferð þar sem hún deilir sinni sögu með fylgjendum. 28. apríl 2022 10:31 Konur eigi rétt á bótum vegna PIP-brjóstapúðanna Franskur áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að á þriðja þúsund kvenna sem fengu svonefnda PIP-brjóstapúða ættu að fá skaðabætur. Lögmaður íslenskra kvenna sem taka þátt í hópmálsókn vegna púðanna segir niðurstöðuna áfangasigur. 20. maí 2021 08:50 Mest lesið Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Erlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Erlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Fleiri fréttir Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Sjá meira
Rakel Orra segir litlu brjóstin hafa verið lykilinn að heilsunni „Brjóstin skipta ekki máli ef þú hefur heilsuna þína,“ segir Rakel Orradóttir, markþjálfi og áhrifavaldur, sem endurheimti heilsuna eftir að hún lét fjarlægja sílíkonpúða úr brjóstunum á sér fyrir rúmum sjö vikum síðan. 3. maí 2023 10:01
„Þessir brjóstapúðar eru baneitraðir“ Ásta Erla Jónasdóttir markþjálfi hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum frá því að hún stofnaði síðuna Náttúruleg heilsuvegferð þar sem hún deilir sinni sögu með fylgjendum. 28. apríl 2022 10:31
Konur eigi rétt á bótum vegna PIP-brjóstapúðanna Franskur áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að á þriðja þúsund kvenna sem fengu svonefnda PIP-brjóstapúða ættu að fá skaðabætur. Lögmaður íslenskra kvenna sem taka þátt í hópmálsókn vegna púðanna segir niðurstöðuna áfangasigur. 20. maí 2021 08:50