Landsliðsmaður Panama skotinn til bana Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. september 2023 13:00 Gilberto Hernández var skotinn til bana í heimalandi sínu í gær. Mexsport Gilberto Hernández, landsliðsmaður Panama, var í gær skotinn til bana í borginni Colón í heimalandi sínu. Hann var 26 ára gamall þegar hann lést.
Hernández var staddur með hópi fólks í byggingu þegar tveir menn komu með leigubíl og hófu skothríð. Hernandéz lést í skothríðinni og sjö aðrir slösuðust. Árásarmennirnir neyddu leigubílstjórann til að keyra sig að byggingunni og flúðu svo af vettvangi. Ekki er vitað hvort Hernández, sem var leikmaður Club Atlético Independiente í heimalandi sínu, hafi verið skotmark árásarinnar, eða hver ástæða hennar var. Þó er talið að hún tengist deilum glæpagengja í borginni. Morðtíðni í borginni hefur aukist verulega í borginni undanfarna mánuði þar sem tvö glæpagengi berjast um yfirráð yfir smyglleiðum. Alls hafa yfir fimmtíu manns verið myrtir í Colón það sem af er ári, en um fjörutíu þúsund manns búa í borginni. Hernández gekk í raðir Club Atlético Independiente fyrir síðasta tímabil og lék 32 deildarleiki fyrir liðið þar sem hann skoraði sjö mörk. Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Panama í mars á þessu ári í vináttuleik gegn Gvatemala, en alls urðu landsleikirnir aðeins tveir talsins.
Fótbolti Panama Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Sjá meira