Þvinga fanga til að flytja skotfæri gegnum jarðsprengjusvæði Samúel Karl Ólason skrifar 7. október 2023 09:00 Úkraínskir stríðsfangar lausir eftir fangaskipti. Getty/Úkraínski herinn Rannsakendur Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna segjast hafa staðfest að sex úkraínskir stríðsfangar hafi verið teknir af lífi af föngurum sínum. Stofnunin hefur einnig staðfest tvær grimmilegar aftökur úkraínskra manna sem tekin voru upp á myndbönd sem birt voru á netinu.
Þá hafa úkraínskir stríðsfangar verið þvingaðir til að flytja skotfæri og særða rússneska hermenn í gengum jarðsprengjusvæði og hefur þeim verið misþyrmt í haldi Rússa. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Mannréttindastofnuninni (OHCHR) sem birt var í vikunni. Þar segir að engin dæmi um að Úkraínumenn hafi tekið rússneska stríðsfanga af lífi hafi fundist. Staðfestu aftökur sem teknar voru upp Í skýrslu OHCHR segir einnig að staðfest sé að í mars á þessu ári hafi rússneskir hermenn pyntað og tekið tvo úkraínska hermenn af lífi. Rússneskir hermenn birtu myndbönd af báðum aftökunum. Í fyrra tilvikinu sýndi myndband úkraínskan hermann standa í grunnum skurði og reykja sígarettu. Maðurinn með myndavélina virðist vera að bakka frá honum þegar úkraínski hermaðurinn segir: „Slava Ukraini“ eða „Lifi Úkraína“. Við það var hann skotinn margsinnis af nokkrum rússneskum hermönnum og sagði einn þeirra eftir á: „Drepstu hundur“. Í seinna tilvikinu birtu rússneskir hermenn myndband af því þegar höfuðið var skorið af lifandi úkraínskum hermanni. Umrætt myndband sýnir hvernig rússneskur hermaður hélt öskrandi úkraínskum hermanni niðri og skar af honum höfuðið á meðan annar stóð til hliðar, hvatti böðulinn áfram og tók ódæðið upp. Sjá einnig: Segir aftökumyndband sýna hið raunverulega Rússland Sumarið 2022 birtu Rússneskir hermenn einnig myndir af höfði og höndum úkraínsks hermanns á stjökum. Það var um svipað leyti sem myndband af rússneskum hermönnum skera undan úkraínskum stríðsfanga með dúkahníf var í dreifingu. Myndbandið sýndi þrjá rússneska hermenn halda úkraínskum manni niðri, skera hann með dúkaníf og skjóta hann svo í höfuðið. Þá héldu Rússar því fram að myndbandið hefði verið sviðsett til að koma óorði á rússneska hermenn. Rannsakendur Bellingcat gátu þó borið kennsl á manninn sem misþyrmdi og myrti úkraínska hermanninn á myndbandinu. Sá tilheyrði téténskri hersveit í rússneska hernum en frekari upplýsingar um hvernig hann var fundinn má finna á vef samtakanna. Sjá einnig: Stjaksettu höfuð úkraínsks hermanns Þvinga fanga til að flytja skotfæri gegnum jarðsprengjusvæði Í skýrslu OHCHR segir að í september í fyrra hafi rússneskir hermenn skotið úkraínskan stríðsfanga sem var særður á fæti eftir að hafa stigið á jarðsprengju. Hann hefði verið þvingaður til að flytja skotfæri til rússneskra hermanna í gegnum jarðsprengjusvæði. Annar úkraínskur stríðsfangi var skotinn til bana fyrir að neita að flytja skotfæri. Mennirnir voru í hópi úkraínskra hermanna sem voru handsamaðir nokkrum vikum áður í Dónetskhéraði en þeir voru þvingaðir til að flytja skotfæri og særða rússneska hermenn um jarðsprengjusvæði í þrjá mánuði. Það að þvinga stríðsfanga til að framkvæma störf sem þessi er stríðsglæpur. Aftökur stríðsfanga eru það einnig. Pyntaðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rannsakendur OHCHR ræddu við 56 úkraínska hermenn sem höfðu verið í haldi Rússa en var sleppt í skiptum fyrir rússneska stríðsfanga. Þeir ræddu einnig við 26 rússneska stríðsfanga í haldi Úkraínumanna. Flestir Úkraínumennirnir, eða 51 af 56, sögðust hafa verið pyntaðir, barðir, ógnað eða beittir kynferðislegu ofbeldi. Í skýrslunni segir að aðstæður úkraínska stríðsfanga í höndum Rússa séu verulega slæmar. Rússar hafa ekki veitt rannsakendum, eða öðrum aðilum, aðgang að úkraínskum stríðsföngum á yfirráðasvæði þeirra. Rússneskir stríðsfangar í haldi í vesturhluta Úkraínu.Getty/Paula Bronstein Tólf af 23 rússneskum stríðsföngum sögðust hafa verið pyntaðir eða beittir ofbeldi við yfirheyrslur, áður en þeir voru fluttir í formlegar fangabúðir. Þá gagnrýna rannsakendur OHCHR yfirvöld í Úkraínu fyrir að skrá ekki alla rússneska stríðsfanga og halda einhverjum í óformlegum fangabúðum. Tekið er fram í skýrslunni að yfirvöld hafi brugðist við fyrri gagnrýni og reynt að bæta aðstæður rússneskra stríðsfanga. Til að mynda hafi matarskammtar rússneskra stríðsfanga verið auknir og hætt hafi verið að láta fanga stundum syngja fyrir máltíðir. Í skýrslunni segir að hundruð óbreyttra úkraínskra borgara séu í haldi Rússa. Þetta fólk hafi verið pyntað og beitt margskonar ofbeldi. Engin rússnesk rannsókn á dauða fanga Rannsakendur OHCHR héldu áfram að rannsaka dauða að minnsta kosti 51 fanga í Olenivka í Dónetsk í fyrra. Enn er það mat rannsakenda að Rússar hafi sagt ósatt um að fangarnir hafi farist í HIMARS-árás Úkraínumanna og myndefni frá vettvangi sýni að líklegt sé að umræddum sprengjum hafi verið skotið frá austri, eða frá yfirráðasvæði Rússa. Úkraínumenn hafa haldið því fram að Rússar hafi myrt fangana til að hylma yfir slæma meðferð á þeim. Sjá einnig: Stríðsfangarnir í Olenivka ekki felldir í HIMARS-árás Í skýrslu OHCHR segir að ekkert bendi til þess að Rússar hafi framkvæmt rannsókn á árásinni. Þá var rannsakendum Sameinuðu þjóðanna meinaður aðgangur að svæðinu. Leikarinn Steven Seagal fékk þó aðgang að fangabúðunum og föngunum sem voru í haldi þar. Var það vegna heimildamyndar sem hann átti að vera að vinna við og ætlað var að varpa ljósi á sannleikann varðandi innrás Rússa í Úkraínu. Segja börn beitt ofbeldi Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) gáfu í mars út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Maríu Alekseyevna Lvova-Belova, nokkurskonar umboðskonu barna í Rússlandi. Var það ert vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. Sjá einnig: Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Rannsakendur OHCHR segja að börn af yfirráðasvæði Rússa í Karkív og Kherson hafi verið flutt til sumarbúða á Krímskaga og í Rússlandi í fyrra. Það á að hafa verið gert með samþykki foreldra þeirra eða umráðamanna en börnin voru ekki send heim eins og átti að gera. Sum þeirra eru enn í Rússlandi en foreldrar sem hafa getað ferðast til Rússlands hafa þó getað náð í börn sín. Sum barnanna sem voru sótt, segjast hafa verið beitt ofbeldi eða að þau hafi orðið vitni af ofbeldi. Börnin munu hafa verið barin fyrir að lýsa yfir stuðningi við Úkraínu eða fyrir að neita syngja rússneska þjóðsönginn eða neita að hylla rússneska fánann. Börnum var einnig hótað því að þau yrðu flutt á munaðarleysingjahæli í Rússlandi eða ættleidd til rússneskra fjölskyldna. Rússar hafa ekki reynt að fela þessi mannrán heldur halda þeir því þess í stað fram að um björgunarstarf sé að ræða. Úkraínsk börn hafa verið ættleidd til rússneskra foreldra, jafnvel þó þau séu ekki munaðarlaus. Hvort sem börn eru munaðarlaus eða ekki, þá er það að ala börn upp í annarri menningu mögulegt ummerki þjóðernishreinsunar. Þess að verið sé að reyna að þurrka út menningu og einkenni óvinaþjóðar. Pútín hefur opinberlega lýst því yfir að hann styðji þessar ættleiðingar.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mannréttindi Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Brestir að myndast í samstöðunni með Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins hafa safnast saman í Granada á Spáni þar sem til stendur að ræða meðal annars stækkun sambandins, flóttamannastrauminn og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. 6. október 2023 07:38 Segja 49 hafa fallið í árás á matvöruverslun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir 49 manns hafa fallið í árás Rússa á matvöruverslun og kaffihús í þorpinu Hroza í Karkívhéraði. Sex ára drengur er meðal hinna látnu en minnst sex aðrir særðust í árásinni. 5. október 2023 13:59 Sundraðir Repúblikanar gefa sér viku Átta Repúblikanar, af 220 í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, veltu Kevin McCarthy, fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, úr sessi í gærkvöldi. Þetta eru margir af sömu þingmönnunum og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins. 4. október 2023 13:32 Skortur og álag á lögregluþjónum: „Einungis fávitar myndu ganga til liðs við lögregluna“ Gífurlegt álag er á lögregluþjónum í Rússlandi, sem má að miklu leyti rekja til fækkunar lögregluþjóna, þó mun fleiri lögregluþjónar séu í Rússlandi miðað við í Bandaríkjunum og Bretlandi. Fækkunin hefur komið niður á forvörnum þeirra gegn glæpum, leitt til spillingar og annarra vandræða. 1. október 2023 14:48 Pútín biður Wagner-foringja að taka yfir sjálfboðasveitir Rússa Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur fundað með Andrei Troshev, háttsettum foringja innan Wagner-málaliðahópsins. Stjórnvöld í Moskvu segja Troshev nú starfa fyrir varnarmálaráðuneytið. 29. september 2023 08:43 Mest lesið Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Innlent Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Erlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Innlent Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Sjá meira
Brestir að myndast í samstöðunni með Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins hafa safnast saman í Granada á Spáni þar sem til stendur að ræða meðal annars stækkun sambandins, flóttamannastrauminn og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. 6. október 2023 07:38
Segja 49 hafa fallið í árás á matvöruverslun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir 49 manns hafa fallið í árás Rússa á matvöruverslun og kaffihús í þorpinu Hroza í Karkívhéraði. Sex ára drengur er meðal hinna látnu en minnst sex aðrir særðust í árásinni. 5. október 2023 13:59
Sundraðir Repúblikanar gefa sér viku Átta Repúblikanar, af 220 í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, veltu Kevin McCarthy, fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, úr sessi í gærkvöldi. Þetta eru margir af sömu þingmönnunum og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins. 4. október 2023 13:32
Skortur og álag á lögregluþjónum: „Einungis fávitar myndu ganga til liðs við lögregluna“ Gífurlegt álag er á lögregluþjónum í Rússlandi, sem má að miklu leyti rekja til fækkunar lögregluþjóna, þó mun fleiri lögregluþjónar séu í Rússlandi miðað við í Bandaríkjunum og Bretlandi. Fækkunin hefur komið niður á forvörnum þeirra gegn glæpum, leitt til spillingar og annarra vandræða. 1. október 2023 14:48
Pútín biður Wagner-foringja að taka yfir sjálfboðasveitir Rússa Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur fundað með Andrei Troshev, háttsettum foringja innan Wagner-málaliðahópsins. Stjórnvöld í Moskvu segja Troshev nú starfa fyrir varnarmálaráðuneytið. 29. september 2023 08:43