Flugan Ísrael í neti köngulóarinnar Einar Ólafsson skrifar 1. nóvember 2023 09:00 Í grein á Vísi 30. október, Köngulóarvefur Hamas, víkur Bjarni Már Magnússon prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst að margumræddri atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum um ástandið á Gasa og þeim slóðum. Hann bendir á að utanríkisráðuneytið „hefði viljað sjá breytingartillögu Kanada ná brautargengi sem tók skýrar á grimmdarverkum Hamas frá 7. október en upphaflega tillagan gerði“ og að það hefði verið eðlilegt þar sem þetta hafi verið fyrsta ályktunin frá lykilstofnunum S.Þ. um þetta mál. Ályktun Allsherjarþingsins Við lestur ályktunarinnar sýnist mér hins vegar ljóst að tillaga Kanada sé algerlega út í hött. Eins og Bjarni bendir á beinist ályktunin að mannúðarhlið átakanna. Hún snýst fyrst og fremst um praktíska lausn þess skelfilega ástands sem nú ríkir og að alþjóðalög verði virt sérstaklega hvað varðar vernd almennra borgara og hjálparstarfsmanna og aðgengi að nauðsynjum og nauðsynlegri þjónustu á Gasa-svæðinu. Ég hef gert nánari grein fyrir þessum tillögum í grein sem birtist á vefmiðlinum Neistar. Í ályktunin er enginn einhliða fordæming. Eina fordæmingin kemur fram í því að ofbeldi gagnvart bæði palestínskum og ísraelskum borgurum er fordæmt, þar á meðal öll hryðjuverkastarfsemi, ögranir og eyðilegging. Ísrael er ávarpað aðeins einu sinni: Kallað er eftir að skipun Ísraels um að palestínskir borgarar og starfsmenn Sameinuðu þjóðanna og aðrir hjálparstarfsmenn hverfi frá norðurhluta Gasa-svæðisins til suðurhlutans verði afturkölluð. Jafnframt er kallað eftir að borgurum, sem er haldið föngnum, verði tafarlaust og skilyrðislaust sleppt. Þar er augljóslega átt við gíslana sem teknir voru en væntanlega líka fólk sem Ísrael hefur í haldi án dóms og laga. Annars er alltaf talað um „alla aðila“ (all parties). Í tillögunni er lögð áhersla á hlutleysi þannig að öll ríki ættu að geta samþykkt hana, nema kannski Ísrael (Palestína er ekki fullgildur aðili að Sameinuðu Þjóðunum og hefur ekki atkvæðisrétt). Það hefði því verið fullkomlega óeðlilegt að bæta inn í þessa ályktun einhliða fordæmingu á einum aðila. Gengur upp að fordæma Ísrael? Bjarni víkur síðan að orðum Jonasar Gahr Störe forsætisráðherra Noregs um að hann telji aðgerðir Ísraels á Gasa vera óhóflegar miðað við kröfur alþjóðalaga. Hann segir slíkar yfirlýsingar þjóðarleiðtoga verði að byggjast á viðhlítandi gögnum og upplýsingum og að kröfur um að íslensk stjórnvöld fordæmi Ísrael gangi tæplega upp að svo stöddu. Það má spyrja hvað hann telji viðhlítandi gögn og upplýsingar þegar ljóst er að Ísrael lætur sprengjum rigna yfir þéttbýlið á Gasa, myndir birtast af heilu íbúðarhverfunum í rúst, óyggjandi er að þúsundir manna, þar á meðal mikill fjöldi barna, hefur látið lífið, lokað hefur verið fyrir aðdrætti, þar á meðal rafmagn og vatn, og alþjóðlegar hjálparstofnanir, þar á meðal stofnanir Sameinuðu þjóðanna, hafa lýst því yfir að aðkoma þeirra sé hindruð og sjúkrahús séu óstarfhæf. Í framhaldi af því segir hann: „Þótt Ísland hafi viðurkennt sjálfstæði og fullveldi Palestínu þá hegðar stjórn Hamas sér ekki í samræmi við það sem ætlast má til af aðilum sem taka þátt í samfélagi þjóðanna á grundvelli virðingar fyrir alþjóðalögum.“ Og áréttar að viðurkenningu Íslands á Palestínu hafi ekki fylgt viðurkenning á Hamas. Vandséð er hvaða máli það skiptir í þessu samhengi. Það ljóst að Ísrael, sem Ísland hefur alla tíð viðurkennt og haft stjórnmálasamband við, hefur ekki heldur hegðað sér á þann hátt sem ætlast er til af Hamas. Hvað þarf til að fordæma árásir á íbúðabyggðir? Nú er lagaprófessorinn eflaust betur að sér um hina lagalegu hlið málsins. Ég veit þó ekki til að varðandi fordæmingu á aðgerðum annarra ríkja séu ríki bundin alþjóðalögum eða að þar til bær dómstóll eða alþjóðleg stofnun hafi kveðið upp úrskurð. Íslensk stjórnvöld biðu ekki eftir neinum slíkum úrskurði áður en þau – að sjálfsögðu – fordæmdu samdægurs innrás Rússa í Úkraínu. Sérfræðingar (special rapporteurs) Sameinuðu þjóðanna hafa sakað Ísrael um stríðsglæpi sem og virt mannréttindasamtök eins og Mannréttindavaktin (Human Rights Watch) og Amnesty International og fleiri. Varðandi átökin á Gasa lýsti rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna (Independent International Commission of Inquiry on the Occupied Palestinian Territory) því yfir 10. október að miklar líkur væru á að stríðsglæpir hefðu verið framdir í Ísrael og á Gasa, gíslataka vopnaðra hópa frá Gasa sé stríðsglæpur, og jafnframt hefði hún miklar áhyggjur af árásum Ísraels á Gasa og yfirlýsingum ísraelskra stjórnvalda um sameiginlega refsingu sem er stríðsglæpur samkvæmt Genfarsáttmálanum. Hafi nefndin haft áhyggjur af stríðsglæpum strax 10. október hljóta þær áhyggjur að hafa vaxið nokkuð á þrem þrem vikum sem síðan eru liðnar. Það má því kallast nokkuð mikil varfærni að segja að fordæming á aðgerðum Ísraels gangi tæplega upp að svo stöddu. Ísrael í neti Hamas Vangaveltur greinarhöfundar um hvernig leiðtogar Hamas og bakhjarlar þeirra hafa „fest Ísrael í köngulóarvef þar sem öll viðbrögð magna upp málstað hryðjuverkasamtakanna í hugum þeirra sem ekki hafa skilning á við hvað er að etja“ læt ég liggja milli hluta að sinni, þótt líkingin sé svolítið hæpin þar sem venjulega eru það smáflugur sem festast í vef köngulóarinnar. Og svo má líka spyrja í hugum hverra þessi viðbrögð hafa magnað upp málstað hryðjuverkasamtakanna. Höfundur er ljóðskáld sem hefur fylgst með málefnum Palestínu í hálfa öld. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun