Veðurstofan gaf það út í tilkynningu í gær að merki væru um að meira magn kviku þurfi að safnast fyrir undir Svartsengi en áður til að koma af stað eldgosi. Tímasetning á næsta mögulega gosi væri jafnframt þrungin meiri óvissu en áður. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur horfir nú til næstu daga.
„Ef það kemur ekki til goss finnst mér líklegt að það sé komin tregða í aðfærslukerfið og að þessi gosrás sem notuð hefur verið í undanförnum gosum er kannski ekki eins greiðfær fyrir kvikuna eins og hefur verið,“ segir Þorvaldur.
Kvikan gæti verið orðin deig, og þannig sterkari en áður - og þá haldið aftur af miklu álagi. Fyrir liggur að svipað magn af kviku hafi nú safnast undir Svartsengi og fyrir síðustu gos, rúmlega tíu milljón rúmmetrar.
„Ef það er meiri samsöfnun á kviku heldur en það þá myndi ég halda það að það væri eitthvað sem stíflaði þessa gosrás sem hefur verið í gangi og þá gæti kvikan farið í aðrar áttir. Hún gæti farið þá í norðurhluta Sundhnúkareinarinnar eða jafnvel i suðurhluta Sundhnúkareinarinnar, sem væri mjög slæmt, en gæti líka stokkið í eldvarpareinina. Og þá myndi virknin færast frá þessum innviðum. En það er ekki nokkur leið fyrir okkur að spá fyrir um hvernig sú atburðarás verður. Kerfið er komið að þolmörkum og það kæmi mér ekkert á óvart að það gysi nú um helgina. En það getur líka farið á hinn veginn.“
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur gáfu út spá í gær sem vakti athygli; niðurstaða þeirra er sú að umbrotum við Grindavík ljúki nú síðsumars.
Hvað gefurðu fyrir þetta?
„Bara mjög áhugaverð spá. Þeir nota upplýsingar sem koma um innflæði á kviku og það virðist hafa dregið úr því með tíma. Og ef það ferli heldur áfram þá náttúrulega endar þetta. Þannig að þetta er bara mjög áhugaverð spá og verður gaman að fylgjast með og sjá hvort hún gangi eftir.“