Innlent

Einum til sleppt úr haldi

Árni Sæberg skrifar
Einn sakborninga á leið inn í dómsal þegar þeir voru upphaflega úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Einn sakborninga á leið inn í dómsal þegar þeir voru upphaflega úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Vísir/Vilhelm

Einum til viðbótar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið mansalsmál. Rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur taldir fyrir hendi.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að lögregla haldi fólki ekki lengur en nauðsynlegt þyki og því hafi einn verið látinn laus í dag. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. 

Tveir voru látnir lausir í gær af sömu ástæðum. 

Grímur segir að nú séu þrír í gæsluvarðhaldi en þeir sem látnir hafa verið lausir séu enn með réttarstöðu sakbornings í málinu. Hann vill ekkert gefa upp um það hverjum hefur verið sleppt.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er athafnamaðurinn Davíð Viðarsson enn í gæsluvarðhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×