Dæmdur fyrir að skamma níu ára dreng sem hrinti syni hans Árni Sæberg skrifar 3. apríl 2024 15:31 Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í málinu fyrir páska. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir barnaverndarlagabrot. Hann var sakfelldur fyrir að taka harkalega í níu ára dreng sem hafði verið að stríða syni hans.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp þann 27. mars síðastliðinn en birtur í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir barnaverndarlagabrot, með því að hafa, mánudaginn 20. júní 2022, verið með ógnandi tilburði og yfirgang gagnvart drengnum, með því að hafa tekið harkalega í hann þar sem hann lá, reist hann við, haldið fast í vinstri hönd hans, leitt hann með sér, gengið, ýtt og staðið ógnandi yfir honum og skammað hann í kjölfar þess að hann losaði sig, þessu næst tekið fast í hægri hönd hans, haldið hægri hendinni fastri aftur á bak, leitt hann þannig af stað og haldið fast og togað í hann þegar hann reyndi að losa sig frá ákærða þar til hann reif sig lausan, allt með þeim afleiðingum að drengurinn varð mjög hræddur og óttasleginn. Með háttsemi sinni hafi maðurinn sýnt drengnum yfirgang, ruddalegt athæfi og með ógnandi tilburðum og annarri vanvirðandi háttsemi, sært og móðgað drenginn. Sagði manninn hafa tekið hann hálstaki Í dóminum segir að lögreglu hafi borist tilkynning um líkamsárás og farið á heimili drengsins og rætt við hann og bróður hans. Drengurinn hafi sagst hafa verið að leika sér með bróður sínum og öðrum vini þeirra, syni mannsins sem var ákærður. Hann hafi ýtt vininum, sem hefði hringt í föður sinn. Maðurinn hafi komið og öskrað á hann, tekið hann hálstaki með hægri handlegg og þrengt að í stutta stund, síðan snúið hann niður, krosslagt hendur hans og haldið honum niðri við jörðina í stutta stund. Lögregla hafi þá farið heim til mannsins og rætt við hann. Hann hafi sagst hafa fengið símtal frá syni sínum sem hefði sagt að drengurinn hefði verið að stríða honum og ýta við honum. Hann hafi farið til sonar síns, rætt við drenginn, skammað hann og farið heim. Sonurinn hafi þá hringt aftur og sagt að drengurinn væri enn að stríða honum. Hann hafi þá farið aftur á vettvang, gripið í drenginn, haldið honum föstum og skammað fyrir að leggja son hans í einelti. Myndbandsupptaka lykilsönnunargagn Í niðurstöðukafla dómsins segir að meðal lykilsönnunargagna í málinu hafi verið myndbandsupptaka úr öryggismyndavél. Á henni væri ljóst að mati dómsins að maðurinn hafi beitt drenginn valdi, verið mjög ógnandi og ruddalegur gagnvart drengnum og hindrað för hans, auk þess sem hann hafi tekið tvívegis í drenginn og stýrt honum með valdi út úr mynd, þannig að ekki sést hvað á sér stað, nema að í seinna skiptið sést augljóslega að drengurinn er að reyna að rífa sig lausan frá manninum. Rannsókn málsins af hálfu lögreglu hafi verið ábótavant, meðal annars þar sem að drengurinn og önnur vitni hafi ekki gefið skýrslu fyrir dómi. Þrátt fyrir það verði að mati dómsins talið sannað af upptökunni, sem hafi fangið stuðning í framburði mannsins í frumskýrslu hjá lögreglu, að maðurinn hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru og með þeim afleiðingum sem þar var lýst. Hafið væri yfir skynsamlegan vafa að með háttseminni hafi maðuinn sýnt drengnum yfirgang, ruddaskap og með ógnandi tilburðum og annarri vanvirðandi háttsemi gert drenginn mjög óttasleginn og þar með sært hann og móðgað. Háttsemi hans hafi verið rétt heimfærð til refsiákvæða en maðurinn hafi borið það fyrir sig að ekki væri hægt að ákæra fyrir þau brot sem hann var ákærður fyrir nema að ákært væri fyrir líkamsárás í leiðinni. Dómurinn féllst ekki á það. Með vísan til þess að maðurinn hafi ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi var refsinh hans hæfilega metin þrjátíu daga fangelsisvist, sem skyldi frestað og látin niður falla að tveimur árum liðnum, haldi hann almennt skilorð. Þá var honum gert að greið málsvarnarlaun verjanda síns, 450 þúsund krónur. Dóm héraðsdóms má lesa hér.
Dómsmál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira