Menning

Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guðbjörg Lind opnaði nýverið sýninguna Uppáhelling fyrir sæfarendur.
Guðbjörg Lind opnaði nýverið sýninguna Uppáhelling fyrir sæfarendur. Sandra Dögg

„Vatnið hefur alltaf heillað mig og jafnframt valdið mér ótta. Þótt það hljómi kannski ótrúlega þá hef ég ætíð verið vatnshrædd og er nánast ósynd,“ segir myndlistarkonan Guðbjörg Lind. Hún opnaði nýverið sýninguna Uppáhelling fyrir sæfarendur í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu 17, hafnarmegin.

Fjallið var Kjarvalsmálverk ömmu hennar

Blaðamaður ræddi við Guðbjörgu en listin hefur alla tíð verið hluti af hennar lífi.

„Mjög snemma var ég farin að teikna og mála. Ég man eftir að hafa setið við eldhúsgluggann hjá ömmu í Tangagötunni á Ísafirði þar sem síbreytileg fjallshlíðin blasti við eins og veggur. Hún sagði að fjallið væri sitt Kjarvalsmálverk. Þessi afstaða ömmu til umhverfisins átti sinn þátt í að opna augu mín fyrir náttúrunni.

Átján ára var ég komin inn í Myndlista- og handíðaskólann og stefndi á að verða myndmenntakennari. Þegar ég hafði næstum lokið því námi vissi ég að ég yrði að fara í málaradeild og tók þrjú ár þar. Þá́ varð ekki aftur snúið.“

Guðbjörg ásamt syni sínum, tónlistarmanninum Marteini eða Bangerboy. Aðsend

Ægifegurð sjávar

Myndlist Guðbjargar sprettur út frá umhverfi æsku hennar vestur á fjörðum.

„Fjöllin og útsýnið úr stofuglugganum heima á Hlíðarvegi yfir á Snæfjallaströndina og út á Djúpið þar sem móðurafi minn fórst ásamt syni sínum. Kannski er það þess vegna sem sjórinn vekur með mér einhverja ógn í kyrrð sinni og ofsa þegar hann rýkur upp. 

Vatnið hefur alltaf heillað mig og jafnframt valdið mér ótta. Þótt það hljómi kannski ótrúlega þá hef ég ætíð verið vatnshrædd og er nánast ósynd.

Þessar blendnu tilfinningar, hrifningin og óttinn, eru kannski kveikjan að þessari miklu áherslu á vatnið í verkum mínum. Á sýningunni minni núna beini ég athygli minni að sjávarfletinum þar sem eyjar eða bátar fljóta í yfirborðinu og fjallshlíðar og eyrar teygja sig út á hafflötinn.“

Kaffistellið umrædda. Aðsend

Nýtt landslag í dag

Sömuleiðis segist hún upptekin af nýju landslagi sem blasir á fjörðunum nú.

„Nefnilega sjóeldiskvíunum sem vekja upp margar spurningar. Á gólf sýningarsalarins má sjá innsetningu sem inniheldur kaffistell en bæði bátarnir og bollarnir eru gamlir kunningjar sem kynslóðirnar hafa umgengist af varúð. 

Bollarnir eru jafn mismunandi og varirnar sem snertu þá og við nánari athugun reynast sumir þeirra varðveita síðustu dropa liðinna gæðastunda og spádóma sem sumir eiga enn eftir að rætast.“

Málverk eftir Guðbjörgu Lind. Aðsend

Sýningin stendur til 28. apríl og er opin frá fimmtudegi til sunnudags frá klukkan 14:00 til 18:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.