Innlent

Ás­laug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvann­eyri

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Áslaug Arna, sem er ein af kúnum á Hvanneyri og unir sér vel þar í fjósinu.
Áslaug Arna, sem er ein af kúnum á Hvanneyri og unir sér vel þar í fjósinu. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Kúanöfn í íslenskum fjósum eru fjölbreytt og mörg þeirra mjög skemmtileg. Algeng nöfn eru eins og Skjalda, Branda, Skrauta og Blíða en í fjósinu á Hvanneyri eru ráðherranöfn vinsæl og þar stendur Áslaug Arna sig einstaklega vel í mjöltum.

Myndarlegt fjós er rekið á Hvanneyri í Borgarfirði þar sem kýrnar eru að skila miklum afurðum og standa sig vel á allan hátt. Þá er fjósið snyrtilegt og gaman að koma þangað inn. Allar kýrnar eru með nöfnum og líka númerum en kýrin Áslaug Arna, sem fékk nafnið sitt í höfuðið á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem er einmitt yfirmaður Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri stendur sig vel í fjósinu.

„Já, hún er hérna og mjólkar ágætlega hjá okkur blessunin. Hún er af svokölluðu dómsmálaráðherrakyni hérna í fjósinu. Hún á undan var kýr, sem hét Sigríður Ásthildur og mamma þeirra kúar hét Hanna Birna og hún á einmitt kvígu dóttur, sem heitir Jóna Gunna í höfuðið á Jóni Gunnarssyni. Þetta eru allt saman fyrrum dómsmálaráðherrar og núverandi auðvitað. Það verður að reyna að hafa gaman af þessum nöfnum líka, reyna það allavega,” segir Björn Ingi Ólafsson, fjósameistari Hvanneyrarbúsins léttur í bragði.

Björn Ingi Ólafsson, sem er fjósameistari Hvanneyrarbúsins.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvernig karakter er Áslaug Arna í fjósinu?

„Hún heldur sig mikið fyrir sig og er ekkert mikið fyrir að trana sér í sviðsljósið eins og kannski hefur sést, þar að segja kýrin auðvitað,” segir fjósameistarinn.

En skapið í Áslaugu Örnu, hvernig er það?

„Það er dagamunur á henni og hún mjólkar alveg prýðilega og svo er hún þokkalega falleg,” segir Björn Ingi.

Björn Ingi segir að hann bíði nú eftir einhverri fallegri kvígu, sem komi í heiminn og fá þá nafnið Guðrún Hafsteinsdóttir í höfuðið á núverandi dómsmálaráðherra og verði þá vonandi afbragðskýr í fjósinu.

Nú er verið að bíða eftir að kvíga fæðist í fjósinu, sem fær þá nafnið Guðrún Hafsteinsdóttir.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×