Arnar Þór ráðinn íþróttastjóri Gent Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. júní 2024 14:01 Arnar Þór Viðarsson stýrði íslenska karlalandsliðinu í 31 leik. EPA-EFE/Robert Ghement Arnar Þór Viðarsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, hefur verið ráðinn sem nýr íþróttastjóri belgíska félagsins Gent.
Félagið greindi frá tíðindunum á heimasíðu sinni í morgun, en Arnar hefur undanfarið starfað sem þjálfari unglingaliðs Gent. Raunar var ráðning Arnars ekki einu tíðindin sem félagið greindi frá í morgun. Gent greindi einnig frá því að félagið hafi ráðið nýjan þjálfara sem mun því koma til með að starfa náið með Arnari. Sá heitir Wouter Vrancken og var síðast þjálfari Genk, en hann tekur við af Hein Vanhaezebrouck. Wouter Vrancken en Arnar Vidarsson nemen sportieve roer in handen 🤝MEER | https://t.co/O79kDMMDj4 pic.twitter.com/PXY4x0hAHS— KAA Gent (@KAAGent) June 5, 2024 Eins og áður segir var Arnar síðast þjálfari unglingaliðs Gent áður en hann var ráðinn sem íþróttastjóri félagsins. Þar áður var hann þjálfari karlalandsliðs Íslands, en hann hefur einnig starfað sem yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ. Arnar var landsliðsþjálfari Íslands frá því í desember 2020 þar til honum var sagt upp störfum í lok mars á síðasta ári. Íslenska landsliðið lék 31 leik undir hans stjórn og vann aðeins sex þeirra. Þrettán sinnum gerði liðið jafntefli og tólf sinnum þurfti liðið að sætta sig við tap.
Fótbolti Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Körfubolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Fleiri fréttir Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Sjá meira