Gerði Portúgali að Evrópumeisturum og tekur nú við Aserbaídsjan Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. júní 2024 18:31 Fernando Santos er tekinn við sem þjálfari karlalandsliðs Aserbaídsjan. Jean Catuffe/Getty Images Portúgalski knattspyrnuþjálfarinn Fernando Santos er tekinn við sem þjálfari karlalandsliðs Aserbaídsjan.
Santos er líklega þekktastur fyrir störf sín sem þjálfari portúgalska landsliðsins, sem hann stýrði frá 2014 til 2022. Undir hans stjórn varð liðið Evrópumeistari árið 2016 eftir sigur gegn Frökkum í úrslitum. 🚨🚨| 𝐎𝐅𝐅𝐈𝐂𝐈𝐀𝐋: Fernando Santos (69) is the new head coach of Azerbaijan's national team. A new chapter for the coach... 🇦🇿👨🏫 pic.twitter.com/6olbWVH2FT— CentreGoals. (@centregoals) June 12, 2024 Santos er þó enginn nýgræðingur í þjálfarabransanum, en hans fyrsta starf sem aðalþjálfari var árið 1988 þegar hann tók við portúgalska liðinu Estoril, þar sem hann hafði spilað sem leikmaður í sjö ár áður en hann lagði skóna á hilluna. Síðan þá hefur hann komið víða við og hefur hann meðal annars starfað sem þjálfari stórliðanna þriggja í Portúgal, Porto, Sporting og Benfica. Hann hefur þó að mestu stýrt landsliðum frá árinu 2010 þegar hann tók við gríska landsliðinu áður en hann tók við því portúgalska árið 2014. Hann tók svo við pólska landsliðinu á síðasta ári, en var rekinn eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins sex leikjum. Svipaða sögu er að segja af hans síðasta starfi þegar hann var ráðinn til starfa hjá tyrkneska liðinu Besiktas í janúar á þessu ári, en hann var svo rekinn strax í apríl.
Fótbolti Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira