Lífið

Sumarleg grill­veisla að hætti Lindu Ben

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Linda Ben segir fátt jafnast á við góðan mat undir berum himni á ferðalagi um landið.
Linda Ben segir fátt jafnast á við góðan mat undir berum himni á ferðalagi um landið.

Linda Benediktsdóttir, uppskriftahöfundur og matgæðingur, deilir hér sumarlegri og ljúffengri grilluppskrift sem er tilvalin að bjóða upp á í útilegunni í sumar. 

Linda segir fátt jafnast á við matarboð á tjaldsvæði undir berum himni í góðum félagsskap.

„Sumarleg matarboð eru klárlega í útilegu fyrir mér. Við ferðumst alltaf svo mikið innanlands á sumrin og elskum að elta sólina með hjólhýsið í afturdragi og koma okkur fyrir með góðum vinum á tjaldsvæðum landsins,“ segir Linda.

Að sögn Lindu er mikilvægt að hafa matseldina frekar einfalda þegar kemur að ferðalögum. 

„Ég elska að grilla lambalærisneiðar í marineringunni og bera fram með grilluðu rósakáli, steiktum hvítlaukssveppum og fylltum kartöflum. Sumarleg grillveisla sem er algjört lostæti.“ 

Grillaðar lambalærisneiðar með fylltum bökuðum kartöflum, grilluðu rósakáli og hvítlaukssveppum.

Takið lambalærissneiðarnar út úr kæli og leyfið að ná stofuhita.

Byrjið á því að útbúa kartöflurnar samkvæmt leiðbeiningum hér fyrir neðan.

Gerið svo rósakálið og sveppina.

Grillið svo lambalærisneiðarnar á meðal háum hita þar til þær eru grillaðar í gegn.

Bakaðar kartöflur

„Ef þú hefur ekki ennþá prófað að fylla bökunarkartöflur þá verður þú að fara demba þér í það, því það er svo svakalega gott!“

Hráefni:

Þrjár stórar bökunarkartöflur

Sex sneiðar beikon

50 g smjör

100 g cheddar ostur

Einn graslaukur (má sleppa)

Aðferð:

Setjið kartöflurnar í álpappír, bakið þær eða grillið þar til þær eru mjúkar í gegn í eina klukkustund í 200°C heitum ofni eða um eina og hálfa klukkustund á grilli.

Steikið eða grillið beikonið þar til það er tilbúið og skerið í bita.

Skerið ofan í kartöflurnar og smá hýði af annarri hliðinni og notið skeið til að taka innan úr kartöflunni sem þið setjið í skál. Passið að skemma ekki hýðið, það þarf ennþá að halda lögun þó búið sé að skafa innan úr kartöflunni.

Setjið beikonbitana (skiljið nokkra bita eftir til að skreyta með), smjörið og cheddar ostinn ofan í skálina með kartöflunum og hrærið saman. 

Setjið blönduna aftur ofan í kartöfluhýðið og skreytið með nokkrum beikonbitum og meiri cheddarosti.

Bakið aftur í ofni í fimmtán mínútur eða grillið á bakka þar til osturinn hefur bráðnað. 

Skreytið með graslauk.

Grillað rósakál

200 g rósakál

U.þ.b. 30 g smjör

Smá salt

Aðferð:

Skerið rósakálið í helminga, setjið smjör á pönnu sem má fara á grill (ef þú vilt grilla) annars bara venjulega pönnu. 

Steikið rósakálið við vægan hita þar til það er mjúkt í gegn, saltið eftir smekk.

Steiktir hvítlausksveppir

250 g sveppir

Tveir hvítlauksgeirar

30 g smjör

Aðferð:

Skerið sveppina í grófar sneiðar og steikið á vægum hita á pönnu þar til þeir eru nánast að verða mjúkir í gegn. 

Rífið þá hvítlauksgeirana út á pönnuna og steikið létt með þar til sveppirnir eru tilbúnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.