Það fyrsta sem hópurinn gerði þegar hann kom út úr rútunni var að syngja og dansa og fagna þannig lífinu og Gabríel hátíðinni, sem stendur yfir þessa dagana. Um 100 íbúar frá Eþíópíu búa á Íslandi, m.a. Azeb Kahssay Gebre, sem rekur veitingastaðinn Minilika á Flúðum með Árna Magnúsi, manni sínum þar sem Eþíópískur matur er í boði borðaður með puttunum.
„Matur frá Eþíópíu er mjög góður matur, sterkur matur, jþó ekki mjög sterkur, bara passlegt sterkur og glútenfrítt brauð með,” segir Azeb.
Eftir að hópurinn hafði borðað þá hófst trúarleg athöfn hátíðarinnar, prestur kirjaði og fór með allskonar bænir og svo var biblía látin ganga á milli fólksins og allir kysstu biblíuna. Það var líka athyglisvert að sjá grasið á gólfinu en það er siður þegar hópur eins og þessi kemur saman að sáldra því á gólfið.
Sigurður Ingi Hermannsson á konu frá Eþíópíu og segir hann fólkið þar dásamlegt.
„Það er bara ótrúlega gestrisið og fallegt og gott fólk.”
Eþíópíska fólkinu líður greinilega mjög vel á Íslandi og er ánægt.
„Allt er best á Íslandi, allt gott á Íslandi”, segir Grunnesh frá Eþíópíu, sembýr á Íslandi með sinni fjölskyldu.
Og krakkarnir sungu nokkur lög, klöppuðu með og nutu þess að vera á Flúðum.