Slökkviliði barst útkall um eld í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg um klukkan átta í morgun og fljótlega fylgdi tilkynning um að einstaklingur væri líklega þar inni að sögn Guðjóns Guðjónssonar, aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
„Við sendum allar slökkvistöðvar af stað, fjórar áhafnir og þrjá eða fjóra sjúkrabíla, og þegar við komum á staðinn var staðfest við okkur að það væri einstaklingur inni. Þannig við gengum í það að fara í lífbjörgun og reykkafarar okkar fóru inn með slöngu með sér og fundu einstaklinginn, komu honum í sjúkrabíl og hann var fluttur á bráðamóttöku.“
Upplýsingar um ástand mannsins liggja ekki fyrir.
„Þetta var vissulega alvarlegt vegna þess að það var mikill og dökkur reykur og reykkafarar okkar sáu ekkert. Þurftu bara að þreifa sig áfram og fundu einstaklinginn í raun og veru bara með því að rekast í hann.“
Slökkvistörf hófust eftir að manninum hafði verið komið út og Guðjón segir þau hafa fengið vel.
„Síðan tók við talsverð vinna við að rífa úr loftum. Þetta er gamalt hús, timburgólf og einangrað með hefilspæni, þannig glóðir sátu í því.“
Íbúar á öðrum hæðum hússins komu sér út af sjálfsdáðum; annars vegar kona með hund á efri hæð og einnig maður á neðri hæð. Guðjón segir íbúðina ónýta en ekki sjáanlegar skemmdir í öðrum hlutum hússins.
Slökkvilið hefur lokið störfum á vettvangi en eldsupptök liggja ekki fyrir.
„Núna er slökkvilið búið að afhenda lögreglu vettvang og á eftir verður hafin forvinna við að greina eldsupptök,“ segir Guðjón.