Innlent

Maðurinn fannst látinn

Kolbeinn Tumi Daðason og Jón Þór Stefánsson skrifa
Hlauptungufoss í Brúará.
Hlauptungufoss í Brúará. Getty

Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Hún vinnur að rannsókn málsins og segist ekki ætla að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Lögreglan  óskaði eftir liðsinni þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna slyss við Brúará í Bláskógabyggð á Suðurlandi í dag.Henni barst tilkynning um að maður hafi fallið í Hlauptungufoss í Brúará um eittleytið í dag. 

Björgunarsveitir og tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar á vettvang og tóku þátt í leit að manninum.

Hlauptungufoss er í Brúará.Vísir/Sara

Brúará, og þá sérstaklega Brúarárfoss, er vinsæll ferðamannastaður á Suðurlandi. Hann er þekktur fyrir fagurbláan lit sinn og þangað leggja fjölmargir ferðamenn, Íslendingar sem erlendir, leið sína allan ársins hring.

Banaslys varð í Brúará sumarið 2022 þegar kanadískur ríkisborgari kom syni sínum til bjargar sem fallið hafði í ána. Maðurinn féll hins vegar sjálfur í ána og lést. Brúará getur verið mjög straumhörð og köld.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×