Skoðun

Það sem „gleymist“ að segja

Sigmar Guðmundsson skrifar

Það getur verið ákveðin kúnst að lesa á milli lína eða rýna í það sem er ósagt. En stundum er það furðulétt, ekki síst þegar hið ósagða blasir við okkur öllum á hverjum einasta degi. Seðlabankastjóri sagði í gær að nýlegar vaxtahækkanir viðskiptabankanna á verðtryggðum lánum væru brattar. Þetta blasir við fjölskyldum landsins sem þó vafalítið myndu nota um þetta stærri og sterkari orð.

Þetta eru áhugaverð ummæli hjá Seðlabankastjóra. Það er umhugsunarvert hversu langt bankarnir ganga í að þrengja að vaxtapíndum fjölskyldum landsins. En Seðlabankastjóri nefnir ekki að bankarnir hækka vextina í skjóli þeirrar vaxtastefnu sem Seðlabankinn er nauðbeygður til að reka vegna þess að þeir sem stjórna ríkisbuddunni vinna ekki með Seðlabankanum í baráttunni við verðbólguna.

Seðlabankastjóri ætti að vera duglegri við að benda á þessa staðreynd því verðbólga og vextir lækka ekki ef ríkisstjórn og Seðlabankinn dansa ekki í takti. Þessi óstjórn ríkisfjármálanna býr til hringrás sem endar alltaf með því að almenningur borgar brúsann með hærri vöxtum. Rót vandans nú liggur í agalausri hagstjórn sem þrífst svo vel í krónuhagkerfinu.

Þetta ósagða blasir einnig við okkur þegar fjármálaráðherra segir að nú séu stýrivextirnir farnir að bíta gríðarlega. Hann forðast eins og heitan eldinn að nefna hömlulaus útgjaldavöxtur ríkissjóðs á undanförnum árum er ein helsta ástæða þess að stýrivextirnir eru naglfastir upp í rjáfri.

Reyndar er það óþarflega hógvær orðanotkun að tala um að vextirnir séu farnir að bíta. Réttari lýsing væri að séríslensku ofurvextirnir eru farnir að naga lífsviðurværið undan venjulegum fjölskyldum. Vextirnir þrengja harkalega að hálsi millistéttarinnar sem bregst við með ráðdeild og forgangsröðun peninga í heimilisbókhaldinu. Sem ríkisvaldið hefur ekki gert hingað til og vinnur því gegn heimilunum. Þetta fylgir yfirleitt ekki sögunni þegar hún er matreidd ofan í landsmenn en full ástæða samt til að halda þessu til haga.

Það skynsamlegasta sem við getum gert í stöðunni er að minnka vaxtakostnað ríkissjóðs og nýta fjármuni sem þar losna í mikilvæg velferðarmál. Að mínu mati ætti ríkið að losa um þá peninga sem liggja í eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum og greiða upp skuldir fyrir söluhagnaðinn. Einnig gæti ríkið selt lóðir sem það á í sama tilgangi. Upphæðirnar sem þarna um ræðir eru sennilega um 300 milljarðar. Slík upphæð getur lækkað vaxtabyrði ríkissjóðs um allt að 30 milljarða króna á ári. Til viðbótar þarf svo auðvitað ríkið að fara betur með peninga almennings en nú er gert. Fá sömu eða betri þjónustu fyrir minna fé. Tækifæri til þess liggja víða í ríkisrekstrinum.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×