Innlent

Efast um að málinu verði á­frýjað

Jón Þór Stefánsson og Árni Sæberg skrifa
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, ásamt umbjóðanda sínum Alberti Guðmundssyni, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, ásamt umbjóðanda sínum Alberti Guðmundssyni, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar, segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um sýkna Albert af ákæru um nauðgun vera lögfræðilega rétta niðurstöðu.

„Þetta er ítarlegur og vel rökstuddur dómur, og réttur. Þetta er í samræmi við það sem Albert hefur alltaf haldið fram um sakleysi sitt. Þannig við fögnum þessari niðurstöðu,“ sagði Vilhjálmur við fréttastofu að dómsuppsögu lokinni í dag.

Sjá nánar:  Albert sýknaður

Var þetta viðbúin niðurstaða?

„Já ég tel það. Þetta var lögfræðilega rétt niðurstaða, og ég tel að hún sé í samræmi við ríkjandi réttarframkvæmd.“

Að sögn Vilhjálms er rökstuðningur dómsins meira en tuttugu blaðsíður. Þar komi fram að framburður Alberts hafi þótt trúverðugur, en að ekki verði sama sagt um framburð konunnar sem kærði hann.

Upphaflega felldi Héraðssaksóknari málið niður en Ríkissaksóknari felldi þá ákvörðun niður og lagði það fyrir að sakamál yrði höfðað á hendur Alberti.

„Það er eitthvað sem Ríkissaksóknari verður að eiga við sig, en ég tel að það hafi verið röng niðurstaða og röng ákvörðun.“

Heldur þú að þessu verði áfrýjað?

„Miðað við rökstuðninginn er það mér til efs. En það er auðvitað ríkissaksóknara að ákveða um það. Hann hefur fjórar vikur til þess að taka ákvörðun um það, og við ræðum það þegar þar að kemur.“


Tengdar fréttir

Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga

„Þessi niðurstaða auðvitað lítur að sakamáli og hvort ströng skilyrði séu uppfyllt til þess að dæma mann til fangelsisrefsingar, og breytir í rauninni engu um upplifun brotaþola af þessu kvöldi eða af samskiptum við ákærða,“ segir Eva B. Helgadóttir, réttargæslumaður konunnar sem kærði Albert Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×