Fótbolti

Snoop Dogg vill eignast hlut í Celtic

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snoop Dogg er mikill áhugamaður um íþróttir og sló meðal annars í gegn á Ólympíuleikunum í París þar sem hann lýsti hinum ýmsu viðburðum fyrir NBC.
Snoop Dogg er mikill áhugamaður um íþróttir og sló meðal annars í gegn á Ólympíuleikunum í París þar sem hann lýsti hinum ýmsu viðburðum fyrir NBC. getty/Joe Sargent

Bandaríski rapparinn Snoop Dogg hefur mikinn áhuga á að eignast hlut í skoska fótboltaliðinu Celtic. Hann hefur hrifist af því að sem Hollywood-stjörnurnar Ryan Reynolds og Rob McElhenney hafa gert hjá Wrexham.

Reynolds og McElhenney keyptu Wrexham fyrir tæplega tvær milljónir punda fyrir fjórum árum. Þá var liðið í utandeildinni. Nú er það í C-deildinni og stefnir á að komast upp í B-deildina. Jón Daði Böðvarsson samdi við liðið á dögunum.

Fleiri bandarískar stórstjörnur hafa fetað svipaða leið. Tom Brady á til að mynda hlut í Birmingham City og Snoop Dogg gæti orðið næstur. Og hann er búinn að finna draumaliðið sitt.

„Ég dýrka það sem Ryan hefur gert með Wrexham. Þetta er frábær saga. Að fjárfesta í íþróttaliði er eitthvað sem ég hef lengi horft til,“ sagði Snopp Dogg.

„Ég væri brjálaður að íhuga ekki að fjárfesta í Celtic ef tækifærið gæfist. Ég hef horft á svo mikinn fótbolta í Evrópu en hef aldrei séð stuðningsmenn eins og hjá Celtic. Það er eitthvað einstakt við þá. Það er ástæða fyrir því að stuðningsmenn þeirra eru rómaðir. Bestu leikmennirnir og þjálfararnir í heiminum segja að ekkert jafnist á við Celtic Park og ég vil vera hluti af því.“

Snoop Dogg sagði að til að toppa allt væri lukkudýr Celtic svo hundur.

„Þú gætir ekki skáldað það. Snoop Dogg verður hundurinn Hoopy. Það er fullkomin blanda. Fyrirsagnirnar skrifa sig sjálfar,“ sagði Snoop Dogg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×