Enski boltinn

Guardiola fram­lengir við Man. City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola er ekki á förum því hann hefur framlengt samning sinn.
Pep Guardiola er ekki á förum því hann hefur framlengt samning sinn. Getty/Richard Pelham

Pep Guardiola verður áfram með lið Manchester City en hann hefur gengið frá eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið.

Samningur Guardiola og City átti að renna út í sumar. The Athletic segir frá þessu í kvöld en það er von á formlegri tilkynningu á næstu dögum.

Eftir næsta tímabil verður Guardiola búinn að vera knattspyrnustjóri City í heilan áratug.

Margir héldu að Guardiola myndi yfirgefa félagið í vor en hann ákvað að vera að minnsta kosti eitt ár í viðbót með liðið.

Undir stjórn Guardiola hefur City unnið átján titla þar af enskui úrvalsdeildina þrjú ár í röð og alls sex sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×