Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Jón Þór Stefánsson skrifar 22. nóvember 2024 15:43 Aksturinn var um Hvalfjörð í Kjósahrepp. Vísir/Vilhelm Karlmanni á áttræðisaldri er gert að greiða hundrað þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna umferðarlagabrota og vopnalagabrots, en hann var sýknaður af ákæru um að ógna lífi og heilsu bóndahjóna með vítaverðum akstri.
Það er niðurstaða Landsréttar, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að annarri niðurstöðu. Maðurinn var ákærður fyrir umferðarlaga- og hættubrot fyrir að aka tæplega tuttugu ára gamalli Toyotu Corollu, án ökuréttinda, með vítaverðum og ógnandi hætti í átt að bíl hjónanna, nýlegum Dodge Ram, um Kjósahrepp þann 24. júní 2024. Honum var gefið að sök að hefja eftirför á eftir hjónunum um Þúfukotsveg. Eftirförin hafi verið um tíu kílómetra langan vegarkafla. Hann hafi farið að Meðalfellslandi og á Þjóðveg 47, og reynt að þvinga hjónin af veginum og stofnað lífi og heilsu þeirra í hættu með ófyrirleitnum hætti. „Ætlaði að fórna sjálfum sér og losna við okkur líka“ Í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur kom fram að hjónin og maðurinn væru nágrannar. Þau gáfu skýrslu í héraði og útskýrðu að þau hefðu átt í deilum um landsvæði, en maðurinn væri fyrrverandi eigandi jarðar þeirra. Þá væri atvikið sem málið varðaði einungis eitt af mörgum málum sem hefði komið upp á milli þeirra. Fram kom í málinu að deilur fólksins hefðu áður ratað í dómstóla. Dómurinn féll í Landsrétti í gær.Vísir/Vilhelm „Hann ætlaði sér eitthvað með okkur. Ég veit ekki hvað það er. Ég veit það eftir fyrri reynslu og samskipti við hann,“ sagði bóndinn í skýrslugjöf í héraði, og konan hans tók undir: „Hann kemur eins og hann ætli gjörsamlega að gera út af við okkur. Það fyrsta sem maður hugsaði var að hann ætlaði að fórna sjálfum sér og losna við okkur líka.“ Vísir fjallaði ítarlega um aðalmeðferð málsins í héraði, en þá umfjöllun má finna hér. Bóndinn hafi reynt að keyra yfir hvolp Maðurinn vildi ekki gefa skýrslu í héraðsdómi, en gerði það hins vegar í Landsrétti. Þar sagðist hann hafa verið nýkominn úr baði þegar hann varð var við bóndann á trukknum. Hann hafi opnað út fáklæddur og þá hafi hvolpur sem hann var að passa hlaupið út. Maðurinn sagði bóndann hafa verið að agnúast út í hundinn og reynt að keyra yfir hann, og gert það þrisvar. Bóndinn hafi síðan stöðvað bílinn, og hundurinn þá verið undir henni. Þá hafi maðurinn hlaupið út og viljað ræða við bóndann sem hafi orðið hræddur og ekið í burtu. Hundurinn hafi komið skelkaður til baka með brotið skottið. Maðurinn hafi þá farið á eftir bóndanum á bíl og ætlað að ræða við hann um það sem gerðist þarna á undan. Bóndinn hafi ekið í burtu og þá hafi maðurinn ákveðið aða kaupa sér sígarettur í Kaffi Kjós, og ekið í átt að versluninni en elt bóndann um leið. Hann lýsti akstri sínum ekki sem ógnvænlegum líkt og bóndahjónin gerðu. Hann neitaði því að hann hafi ekið með vítaverðum hætti og reynt að þvinga hjónin af veginum. Á þessari leið hefði bóndinn ekið á 35 kílómetra hraða á vegi þar sem hámarkshraði er níutíu, og maðurinn verið fastur á eftir þeim. Maðurinn leið svo á að hjónin væru að tefja hann, en hann ætlaði á Kaffi Kjós fyrir lokun. Því reyndi hann að taka fram úr, en þau ekið í veg fyrir hann og hann ekið út af veginum skammt frá bænum Sogni. Hann hafi þó komist aftur upp á veginn og síðan ekið á Kaffi Kjós sem reyndist lokað. Flúði lögregluna Síðan hafi hann ekið áfram og orðið var við fullt af lögreglubílum, mótorhjólum og sjúkrabíl. Hann taldi að slys hefði orðið í nágrenninu og hann drifið sig og stöðvað bílinn til að hleypa lögreglunni fram úr sér. En stór svartur lögreglubíll hafi staðnæmst við hlið hans og úr bílnum kom maður með byssu sem hafi rifið hann úr bílnum og handtekið. Þónokkrir lögreglumenn gáfu skýrslu fyrir dómi. Einhverjir þeirra höfðu elt manninn á mótorhjólum.Vísir/Vilhelm Maðurinn var líka ákærður fyrir þessi afskipti við lögregluna. Honum var gefið að sök að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva bílinn þegar hún veitti honum eftirför um Hvalfjörðinn. Þá var hann líka ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa í fórum sínum hníf með átján sentímetra löngu blaði. Tvö myndbönd sem bóndahjónin tóku á meðan meint eftirför fór fram voru á meðal gagna málsins. Að mati héraðsdóms sýndu þau hvernig maurinn stofnaði með ásetningi lífi og heilsu hjónanna í hættu. Í héraði var maðurinn sakfelldur fyrir öll brotin. Hann hlaut fjögurra mánaða dóm, skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt og gert að greiða hjónunum hvoru um sig 400 þúsund krónur. Ram fjórum sinnum þyngri en Corolla Landsréttur komst að annarri niðurstöðu. Í dómnum er bent á að maðurinn hafi verið á 19 ára gamalli Toyota Corollu, en hjónin á nýjum Dodge Ram 3500. Mikill stærðarmunur sé á þessum bílum, en Raminn er sagður tæplega fjórum sinnum þyngri en Corollan, og mun lengri, hærri og breiðari. Þar að auki hafi bílnum verið breytt og hann sé á fjörutíu tommu dekkjum. Dómurinn gat ekki fallist á að akstur mannsins sem náðist á upptöku hafi verið vítaverður og ógnandi. Hann hafi þó verið ögrandi. Það var þó mat Landsréttar að vegna stærðarmunar bílanna hafi maðurinn í raun ekki verið í aðstöðu til að þvinga hjónin af veginum. Hann var því sýknaður fyrir ákærunni sem varðaði vítaverðan akstur, nema að því leyti að hann var ekki með ökuréttindi. Hann var síðan sakfelldur fyrir hin brotin, að koma sér undan lögreglu og vopnalagabrotið. Niðurstaða Landsréttar var sú að maðurinn skyldi greiða 100 þúsund krónur í sekt til ríkissjóð innan fjögurra vikna, ellegar sitja í fangelsi í sex daga. Þá var bótakröfum hjónanna vísað frá dómi.
Dómsmál Umferðaröryggi Kjósarhreppur Nágrannadeilur Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Fleiri fréttir „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Sjá meira