Heimssýn úr músarholu – Gengur það? Ole Anton Bieltvedt skrifar 30. nóvember 2024 06:04 Ég hef kynnst ýmsum ágætum mönnum, vel menntuðum og skynsömum í sumu, sem svo hafa verið alveg úti að aka í öðru. Vantar þar oft í þá heila brú. Þetta gæti t.a.m. átt við um veðurfræðinginn Harald Ólafssson, formann Heimssýnar. Í Heimssýn er hópur manna, ekki vondra eða illviljaðra, en afkapalega þröngsýnna. Með – fyrir mér – músarholusjónarmið í mjög mörgu. Svona hægri-hægri menn. Svipaðir og fólkið í AfD í Þýzkalandi, Wilders-fólkið í Hollandi og Le Pen mannskapurinn í Frakklandi. Þetta fólk er ekki bara yfirkeyrt í sinni þjóðlegu afstöðu, heldur hefur það alþjóleg viðhorf, sem fyrir mér eru undarleg; sumir/margir dá Trump, og aðrir, undarlegt nokk, Pútín. Standa jafnvel með Rússlandi í Úkrínustríðinu. Nefndur Haraldur Ólafsson studdi Arnar Þór Jónsson í forsetakosningunum. Auðvitað mátti hann það, og Arnar Þór er fínn um margt, en þetta segir samt sína sögu um pólitísk viðhorf og stefnu Haraldar. Haraldur skrifaði grein hér á Vísi á dögunum með fyrirsögninni: „Jæja, ræðum þá þetta dásamlega Evrópusamband“, sem ég tel um margt eða flest gefa villandi eða ranga mynd af ESB. Ég bjó í hjarta ESB í 27 ár, kynntist ESB innan frá, allan þennan tíma, og ég hef líka fylgzt gjörla með ESB og Evru eftir það. Ég hef ennfremur heimsótt höfuðstöðvar ESB í Brussel og Evrópska Seðlabankann í Frankfurt og átt þar viðræður við leiðandi menn um bæði almennar spurningar og mögulega aðild Íslands. Haraldur talar um „tíu ókosti“. Við skulum líta á það helzta, sem Haraldur fullyrðir: „Evrópusambandið er ólíkt Íslandi. Í þeim ríkjum sem þar fara með stjórn byggir efnahagurinn á framleiðslu og sölu á háþróuðum iðnvarningi, löndin eru þéttbýl og samfélögin stór“. Það er langt í frá, að öll aðildarríkin séu háþróuð iðnríki, hvað þá þéttbýl eða stór samfélög. Eftirfarandi aðildarríki er öll lítil, sum svipuð og við eða litlu stærri og langt frá því að vera háþróuð, stór iðnríki. T.a.m. þessi: Eistland, Kýpur, Lettland, Lúxemborg, Malta, Slóvenía. Allt lítil ríki, með margvíslegan atvinnurekstur, að hluta til svipaðan og við, eins og t.a.m. Malta. Haraldur segir svo: „Evrópusambandið er tollabandalag 5% mannkyns. Það hefur og mun eflaust eiga í viðskiptadeilum við aðra hluta heimsins“. Þegar markaðs- eða tollabandalög eru mæld og ávinningur við þátttöku í þeim metinn, gildir auðvitað ekki mannfjöldi, heldur stærð markaðarins. ESB stendur fyrir 14% af heimsviðskiptunum, auk þess, sem ESB er með fríverzlunarsamninga við Japan, S-Kóreu og Kanada. Í gegnum EES-samninginn höfum við þó ekki aðgang að þessum fríverzlunar-samningum. Þetta þýðir, að fullgilt ESB-aðildarríki, Ísland, ef við værum með, hefum frjálsan, ótakmarkaðan og mest tollfjálsan aðgang að 20% af heimsmarkaðinum, eins og staðan er nú, en ESB er líka langt komið í samningaumleitunum við Indland, Indónesíu og MERCOSUR ( Brasilíu, Argentínu o.fl.) um fríverzlun. Þarna er algjör risamarkaður í uppsiglingu. Hvert mannsbarn ætti að skilja, hversu ómetanlegur frjáls, óheftur og tollfrjáls aðgangur að þessum risamarkaði væri. Þá segir Haraldur: „Lög Evrópusambandsins gilda í öllum löndum Evrópusambandsins og ganga framar heimasömdum lögum“. Hér hallar Haraldur réttu máli. Gefur alranga, falska, mynd. ESB er tolla- og markaðsbandalag, þar sem 30 þjóðir, 27 ESB-lönd og svo Noregur, Lichtenstein og Ísland koma saman á sameiginlegum frjálsum og mest tolllausum markaði. Til að þessir 30 aðilar geti keppt á grundvelli sömu reglna, skilmála og laga, setið við sama borð, verða skilyrðin - reglur og lög fyrir þátttöku, leikreglur – að vera þau sömu. Öll ríkin 30, stór og smá, verða að sætta sig við þessar sömu leikreglur. Annars myndi þessi stóri, sameiginlegi markaður ekki virka. Öll önnur önnur reglugerða- og lagasetning er hins vegar á allan hátt í höndum aðildarríkjanna sjálfra. Þjóðþinga þeirra. ESB kemur þar hvergi nálægt. Þá þessi haldlausa fullyrðing Haraldar: „Evra hentar Íslandi illa. Gengi evru tekur mið af öðrum aðstæðum en eru á Íslandi. Evra útvegar ekki ódýrt lánsfjármagn“. Ég nefndi í byrjun 6 minni ríki, sem eru mjög ólík, hvað varðar innviði og hagkerfi, Eistland, Kýpur, Lettland, Lúxemborg, Möltu og Slóveníu, sem öll sóttu það fast að fá Evru og njóta hennar nú. Nefna má líka 6 önnur smáríki, sem hafa allt aðra þjóðfélagsgerð og sóttu það fast á sínum tíma, að fá að nota Evru, þó að þau hefðu ekki fengið inngöngu í ESB; Svartfjallaland, Kosóvó, Vatíkanið, Monakó, Andorra, San Marinó. Evran tryggir öllum þessum gjörólíku löndum efnahagslegan stöðugleika og veitir þeim traustan grunn fyrir þeirra efnahagslegu uppbyggingu og framsókn, auk allra lægstu vaxata á lánsfé, sem aftur örvar fjárfestingu og efnahagslega framsókn. Evran myndi henta Íslandi líka. 100%. Loks vil ég fjalla um eftrifarandi rangfærslu Haraldar: „Ógerningur er fyrir smáþjóð að komast aftur út úr sambandinu. Það er ekki ætlast til þess að þjóðir yfirgefi klúbbinn. Það kom mjög skýrt í ljós í tengslum við Brexit“. Þessi fullyrðing er út í hött. Aðildarríki getur yfirgefið ríkjasambandið nánast með einnar línu einhliða tilkynningu og þá strax. Hins vegar myndi þá öll aðstaða og réttindi, aðgangur að ESB, falla úr gildi samstundis líka. Ástæða þess, að Bretland lenti í miklum erfiðleikum við að komast út úr ESB, var ekki tæknilegir uppsagnar- eða útgönguörðugleikar, heldur sú staðreynd, að Bretar vildu halda margvíslegum réttindum og fríðindum, þó þeir væru að ganga út, sem auðvitað gekk ekki upp. Réttindi án skuldbindinga er auðvitað óþekkt fyrirbrigði, en það tók Boris Johnson og félaga nokkurn tíma að skilja það. Hér hefur verið farið í gegnum það helzta af villandi málflutningi og rangfærslum Haraldar Ólfasson, formanns Heimssýnar, um ESB og hugsanlega fulla aðild okkar að sambandinu. Þegar ég skoða stöðu Haraldar hér betur, á Facebook og annars staðar, sé ég, að hann er bæði veðurfræðingur og prófessor í veðurfræði. Eflaust er hann ágætur þar, en í alþjóðlegum efnahags- og markaðsmálum, Evrópusambandinu, ekki. Ég mæli því með, að hann haldi sér við veðrið. Helzt alfarið. Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Pípararnir okkar - Fagstéttin, metfjöldi, átakið, stuðningur Snæbjörn R. Rafnsson skrifar Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar Skoðun Mannréttindaglufur og samgönguglufur Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Ísland er á réttri leið Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Sameining vinstrisins Hlynur Már V. skrifar Skoðun Lágpunktur umræðunnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Almenningur og breiðu bök ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason skrifar Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hundrað doktorsgráður Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun EES: ekki slagorð — heldur réttindi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Að þjóna íþróttum Rögnvaldur Hreiðarsson skrifar Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir skrifar Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun