Breytingarnar eru sagðar vera gerðar meðal annars með hliðsjón af öryggi íbúa og gesta.
Þetta kemur fram í tilkynningu borgarinnar þar sem greint er frá niðurstöðum „starfshóps um endurskoðun á skipulagi Menningarnætur og Reykjavíkurmaraþons“ sem voru samþykktar.
Menningarnótt er afmælishátíð borgarinnar og hefur verið haldin frá árinu 1996. Reykjavíkurmaraþoninu hefur verið haldið frá árinu 1984 og hefur vacið ár frá ári. Til marks um það er tala þátttakenda, þeir voru 214 árið 1984 en 14.646 í ár.
Fyrrnefndum starfshóp var ætlað að greina vinnu brogarinnar í tengslum við viðburðarhaldið og greina kosti og gala. Hópurinn lagði til eftirfarandi tillögur til breytinga:
- Að hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþonsins verði breytt. Endamarkið verði fært frá Lækjargötu yfir í Geirsgötu til að auðvelda flæði fólks um Lækjargötu og takmarka umferð þungavinnuvéla sem fylgja frágangi hlaupsins.
- Að skemmtiskokk verði fært úr Þingholtunum í Gamla vesturbæinn til að létta á flóknum götulokunum í Þingholtunum, þar sem einnig eru götulokanir vegna Menningarnæturdagskrár, og auka öryggi almennings og lágmarka óþægindi íbúa í tengslum við aðgengi.
- Að dagskrá Menningarnætur ljúki formlega klukkustund fyrr en áður. Tónleikar við Arnarhól skuli ljúka með flugeldasýningu kl. 22.00 í stað 23.00.
- Að í aðdraganda hátíðarhaldanna verði farið í herferð þar sem forvarnaskilaboðum verður komið vel á framfæri.
- Að lagt verði til aukið fjármagn til gæslu og í kynningar sem lið í forvarnarstarfi.
„Í framhaldi er lagt er til að stofnaður verði starfshópur til að skoða framtíðarfyrirkomulag viðburða í miðborg Reykjavíkur með tilliti til öryggismála, Borgarlínu og annarra skipulagsmála. Lagðar verða skýrar línur um hvernig viðburðahald fer fram í miðborginni, hvernig hægt er viðhalda áhugaverðu menningarlífi í borginni en á sama tíma gæti fyllsta öryggis íbúa og framtíðarsýn mótuð,“ segir í lok tilkynningar.