Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Kristján Már Unnarsson skrifar 22. desember 2024 22:21 Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq-málmvinnslufélagsins, í viðtali í Qaqortoq. Stöð 2/Baldur Kristjánsson Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu.
Í fréttum Stöðvar 2 var stærsti bær Suður-Grænlands, Qaqortoq, heimsóttur en þar búa um þrjú þúsund manns. Á veturna, þegar ís hindrar siglingar til Narsarsuaq-flugvallar, er dýrt þyrluflug eina leið íbúa bæjarins til að komast á flugvöllinn og síðan þaðan til annarra byggða Grænlands eða út í heim. Séð yfir framkvæmdasvæðið. Til vinstri sést hvar flugbrautin kemur. Flughlaðið og flugstöðin fyrir miðri mynd.KMU En núna er kanadískur verktaki að leggja nýja flugbraut í útjaðri Qaqortoq. Samtímis reisir grænlenskur verktaki flugstöð og þjónustuhús en byggingarnar urðu fokheldar í haust. Flugbrautin verður 1.500 metra löng, litlu styttri en lengsta braut Reykjavíkurflugvallar, og mun því hæglega getað tekið við öllum vélum íslenska innanlandsflugsins, og jafnvel einnig smærri og meðalstórum farþegaþotum. Jim Riis, hótelstjóri í Qaqortoq.Stöð 2/Baldur Kristjánsson Hótelstjóri og eigandi aðalhótelsins í Qaqortoq, Jim Riis, segir völlinn skapa mikil tækifæri, ekki síst í millilandaflugi. „Þetta hefur gríðarlega þýðingu ef við þorum að grípa tækifærið. Við höfum lengi beðið eftir þessu en núna hefjumst við handa. Þetta þýðir að það opnast dyr til umheimsins og annarra hluta Grænlands. Það er það sem við viljum,“ segir Jim Riis. Nýja flugstöðvarbyggingin í Qaqortoq.KMU Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem Bandaríkjaher gerði á stríðsárunum, er í dag sá eini á Suður-Grænlandi en hefur þann galla að vera fjarri helstu bæjum. Erlendir starfsmenn gullleitarfélags Elds Ólafssonar sjá fram á verulegt hagræði með flugvelli við Qaqortoq. „Þessi nýi flugvöllur mun stytta tímann fyrir starfsfólkið okkar að koma inn. Hann mun stytta tímann til að koma fólki inn og út,“ segir Eldur, sem er stofnandi og forstjóri Amaroq-málmvinnslufélagsins. Stefnt er að því að Qaqortoq-flugvöllur verði opnaður fyrri hluta árs 2026.Greenland Airports „Það á að vera auðveldara að lenda þarna, miðað við þar sem flugvöllurinn er núna. Það verður hægt að koma stærri flugvélum inn. Þannig að þetta mun hafa alveg gígantísk áhrif. Ekki bara fyrir okkar starfsemi heldur alla starfsemi á Suður-Grænlandi, túrisma og annað,“ segir Eldur. Upphaflega átti flugvöllurinn að vera tilbúinn árið 2023. Það reyndist hins vegar þrautin þyngri að þoka verkefninu af stað. Núna gera áætlanir ráð fyrir að völlurinn verði tilbúinn eftir rúmt ár. Qaqortoq er stærsti bær Suður-Grænlands.KMU Hótelstjórinn lýsir stemmningunni gagnvart flugvallagerðinni. „Bjartsýni. Það er þessi bjartsýni sem við þurfum að byggja á,“ segir Jim Riis. „Okkur hefur verið haldið niðri í mörg ár. Það er búið að tala um þennan flugvöll í tuttugu ár. Nú kemur hann, nú kemur hann! En hann kom aldrei. En nú er hann þarna, við vitum að hann kemur. Þá erum við tilbúin að taka á móti umheiminum,“ segir hótelstjóri Hótels Qaqortoq. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Grænland Fréttir af flugi Samgöngur Danmörk Amaroq Minerals Ferðalög Tengdar fréttir Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. 16. október 2023 22:11 Suður-Grænland fær loksins nýjan flugvöll Eftir marga ára vandræðagang vegna fjárskorts, tvö útboðsferli og ítrekaðar frestanir virðist gerð nýs aðalflugvallar Suður-Grænlands við bæinn Qaqortoq loksins í höfn. Flugvallafélag landsstjórnar Grænlands hefur undirritað samning við verktaka um gerð flugbrautarinnar og á hún að vera tilbúin haustið 2025 en loðnutekjur af Íslandsmiðum tryggðu fjármögnun. 26. febrúar 2022 08:48 Loðnutekjur af Íslandsmiðum redda grænlenskum flugvelli Væntanlegur loðnugróði Grænlendinga af Íslandsmiðum veldur því að íbúar stærsta bæjar Suður-Grænlands fá loksins nýjan flugvöll. Þar var tíðindunum fagnað með söng og flugeldasýningu á dögunum. 13. desember 2021 20:40 Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Innlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn Innlent Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Innlent Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Innlent Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Fleiri fréttir Lokað um Hellisheiði og Þrengsli og vegir víða á óvissustigi „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Sjá meira
Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. 16. október 2023 22:11
Suður-Grænland fær loksins nýjan flugvöll Eftir marga ára vandræðagang vegna fjárskorts, tvö útboðsferli og ítrekaðar frestanir virðist gerð nýs aðalflugvallar Suður-Grænlands við bæinn Qaqortoq loksins í höfn. Flugvallafélag landsstjórnar Grænlands hefur undirritað samning við verktaka um gerð flugbrautarinnar og á hún að vera tilbúin haustið 2025 en loðnutekjur af Íslandsmiðum tryggðu fjármögnun. 26. febrúar 2022 08:48
Loðnutekjur af Íslandsmiðum redda grænlenskum flugvelli Væntanlegur loðnugróði Grænlendinga af Íslandsmiðum veldur því að íbúar stærsta bæjar Suður-Grænlands fá loksins nýjan flugvöll. Þar var tíðindunum fagnað með söng og flugeldasýningu á dögunum. 13. desember 2021 20:40