Egill Þór er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. desember 2024 09:44 Egill Þór Jónsson er látinn eftir hetjulega baráttu við erfið veikindi í á fjórða ár. Egill Þór Jónsson, teymisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er látinn. Hann lét á Landspítalanum við Hringbraut í návist fjölskyldu og vina föstudagskvöldið 20. desember. Hann var 34 ára gamall og hafði undanfarin ár háð harða baráttu við krabbamein.
Greint er frá andláti Egils Þórs í Morgunblaðinu í dag. Þar er námsferill Egils rifjaður upp en hann ólst upp í Breiðholti, gekk í Hólabrekkuskóla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti og lærði síðar félags- og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Egill Þór helgaði sig fólki með fatlanir og geðrænan vanda í starfi. Hann vann sem stuðningsfulltrúi í búsetukjarnanum Rangárseli að loknu BA-prófi í félagsfræði frá 2015 til 2018. Egill Þór var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2018 til 2022 og varaborgarfulltrúi síðastliðin tvö ár. Hann var öflugur í félagsstörfum bæði í háskólanámi og í stjórnmálum. Þá stakk hann reglulega niður penna og birtist nokkur fjöldi pistla eftir hann í fjölmiðlum, meðal annars á Vísi. Egill var opinskár varðandi baráttu sína við krabbameinið en hann greindist með eitilkrabbamein um mitt ár 2021. Árið 2023 benti allt til þess að sigur hefði unnist á meininu. Bakslag kom upp síðastliðið sumar og dvaldi Egill Þór löngum stundum á sjúkrahúsi með óútskýrð veikindi. Það var loks í lok ágúst sem Egill Þór fékk greiningu á nýju veikindunum. Það reyndist vera margmisþroski sem mátti rekja til fyrri lyfjameðferða og var forstig hvítblæðis sem hann barðist við fram á síðasta dag. Eftirlifandi eiginkona Egils Þórs er Inga María Hlíðar Thorsteinsson, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Þau eignuðust saman tvö börn, Aron Trausta fimm ára og Sigurdísi þriggja ára.
Andlát Sjálfstæðisflokkurinn Heilbrigðismál Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Flugferðum aflýst Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Sjá meira