Sport

Svartur mánu­dagur í NFL-deildinni: Fjórar þjálfarastöður á lausu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jerod Mayo entist ekki lengi í starfi hjá Patriots.
Jerod Mayo entist ekki lengi í starfi hjá Patriots. vísir/getty

Venju samkvæmt gekk mikið á mánudaginn eftir síðustu leikvikuna í NFL-deildinni. Þó misstu færri þjálfarar vinnuna en búist var við.

Robert Kraft, eigandi New England Patriots, reið á vaðið skömmu eftir sigurleik sinna manna gegn Buffalo. Hann rak þá þjálfarann Jerod Mayo en Mayo var varla kominn úr sturtu er tilkynningin um starfslok hans var lent.

Mayo var arftaki sigursælasta þjálfara sögunnar, Bill Belichick, en entist bara í eitt ár.

Það kom sömuleiðis lítið á óvart að Jacksonville Jaguars skildi reka reynsluboltann Doug Pederson. Það sem kom helst á óvart var að félagið skildi ekki reka hann miklu fyrr. Framkvæmdastjóri félagsins hélt þó starfinu sem mörgum þykir skrítið.

Patriots, Jaguars, Jets og Bears eru því þjálfaralaus sem stendur en Jets og Bears ráku sína þjálfara fyrr í vetur.

Óvissa er með stöðu Antonio Pierce hjá Las Vegas Raiders en hann þykir valtur í sessi. Svo er líka spurning hvað Dallas Cowboys gerir.

Eigendur Miami Dolphins, Indianapolis Colts og NY Giants tilkynntu að þjálfarar þeirra liða myndu halda áfram þrátt fyrir dapurt gengi í vetur.

Svo fengu sömuleiðis nokkrir varnar- og sóknarþjálfarar að fjúka eins og var viðbúið.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×