Dómurinn var kveðinn upp síðdegis og birtur skömmu síðar. Dómurinn er mjög ítarlegur og telur einar 107 blaðsíður. Samandregnar niðurstöður dómsins eru þær að hafna kröfu um ógildingu leyfis Fiskistofu vegna byggingar Hvammsvirkjunar en ógilda heimild Umhverfisstofnunar til breytingar á vatnshlotinu Þjórsá 1, frá 9. apríl 2024, vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun og ákvörðun Orkustofnunar 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í samtali við fréttastofu að fulltrúar stofnunarinnar séu enn að kynna sér dóminn, enda sé hann efnismikill. Fyrstu viðbrögð séu einfaldlega að dómurinn valdi vonbrigðum.
Hafi að gera með innleiðingu Evróputilskipunar
Dómurinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að Umhverfisstofnun hafi ekki haft heimild til þess að heimila breytingu á vatnsfarvegum, sem fylgi byggingu vatnsaflsvirkjana. Stofnunin hefði ekki heimild til þessa vegna innleiðingar á Evróputilskipun árið 2022, þrátt fyrir að slíkar breytingar séu heimilar í Evrópu.
Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir eftirfarandi um niðurstöðu dómsins:
„Af dóminum má ráða að við innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins hafi löggjafinn í raun gert Umhverfisstofnun ókleift að veita heimild til breytingar á vatnshloti fyrir byggingu vatnsaflsvirkjana og þar með sé ekki hægt að gefa út virkjunarleyfi. Upphafleg gerð lagafrumvarpsins hafi gert ráð fyrir því, en nefndarálit segi annað. Vilji löggjafans birtist ekki í lagaákvæðinu sjálfu með eins skýrum hætti og æskilegt hefði verið, að því er segir í héraðsdómi.“
Til þess fallið að seinka gangsetningu
Hörður segir að niðurstaða dómsins muni að öllum líkindum seinka framkvæmdum við byggingu Hvammsvirkjunar. Þær séu þegar hafnar og gert hafi verið ráð fyrir því að virkjunin yrði tekin í gagnið árið 2029. Seinkun framkvæmda muni hafa í för með sér kostnað, bæði fyrir Landsvirkjun og aðra.
„Stærsta áhyggjuefnið er að samfélagið þarf mjög á þessari orku að halda, í þeirri stöðu sem við erum í og vegna þeirra markmiða sem við höfum sett okkur. Þannig að afleiðingar á samfélagið eru að mínu mati mjög neikvæðar.
Allar líkur á áfrýjun
Hörður segist telja mjög líklegt að dóminum verði áfrýjað, enda hafi hann komið mikið á óvart. Þá segir hann að Landsvirkjun muni þurfa að ræða við stjórnvöld um þá stöðu sem komin er upp.