Handbolti

Gætið ykkar: Enginn með Wiki­pedia-síðu og vindlasölu­maðurinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Henry Birgir Gunnarsson ljómaði eftir að hafa keypt vindla af leikmanni kúbverska landsliðsins, Osmani Miniet.
Henry Birgir Gunnarsson ljómaði eftir að hafa keypt vindla af leikmanni kúbverska landsliðsins, Osmani Miniet. vísir/vilhelm

Ef Grænhöfðaeyjar voru lítil fyrirstaða fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta ætti mótspyrnan frá Kúbu að vera enn minni. Liðin mætast í G-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld.

Kúba er með á HM í fyrsta sinn í sextán ár og fór ekki vel út úr fyrsta leik sínum á mótinu. Slóvenar tóku þá Kúbverja í kennslustund, 41-19.

Vanmat er ein af höfuðsyndum íþróttanna og auðvitað á að bera virðingu fyrir hverju verkefni. En C-lið Íslands myndi sennilega vinna Kúbu. Íslendingar verða með fjögur stig eftir leikinn í kvöld. Eina spurningin er hversu stór sigurinn verður.

Kúbumenn hafa átt góða handboltamenn í gegnum tíðina en þeir hafa flestir spilað fyrir önnur lönd. Við Íslendingar nutum auðvitað góðs af kröfum Róberts Julian Duranona og Jaliesky García, sælla minninga.

Í fjölþjóða liði Katar eru tveir Kúbverjar og hafa verið lengi; Rafael Capote og Frankis Carol. Þá er línumaður portúgalska landsliðsins, Victor Iturriza, frá Kúbu.

Leikmenn kúbverska liðsins eru lítt þekktir og ekki beint þekktar stærðir. Til marks um það er enginn í kúbverska hópnum með enska Wikipedia-síðu.

Tveir í kúbverska liðinu eiga samherja í því íslenska. Maiko Vázquez leikur með Orra Frey Þorkelssyni hjá Sporting og Freddy Lafonton og Þorsteinn Leó Gunnarsson leika saman hjá Porto. Vázquez skoraði tvö mörk gegn Slóveníu en Lafonton var ekki á meðal markaskorara.

Dariel Garcia í leiknum gegn Slóveníu.epa/ANTONIO BAT

Dariel García, vinstri hornamaður Bidasoa á Spáni, var markahæstur Kúbverja gegn Slóvenum en hann skoraði fjögur mörk. Markahæsti leikmaðurinn í kúbverska liðinu er vinstri skyttan Frank Cordies sem leikur með Huesca á Spáni.

Marksækinn markvörður og vinur hans Villa

Sé rýnt í fjölda landsleikja og marka hjá leikmönnum Kúbu vekur athygli að markvörðurinn og fyrirliðinn Magnol Suárez hefur skorað sex mörk í 32 landsleikjum. Þessi marksækni markvörður varði hins vegar lítið gegn Slóveníu enda í afar erfiðri stöðu.

Stærsta nafnið í leikmannahópi Kúbu er sennilega vinstri hornamaðurinn Hanser Rodríguez sem leikur með Vardar í Norður-Makedóníu. Hann gerði tvö mörk gegn Slóveníu.

Síðan er það Osmani Miniet sem var sessunautur Vilhelms Gunnarssonar, ljósmyndara Vísis, í flugvélinni á leið frá Frankfurt til Zagreb þar sem G-riðilinn er leikinn.

Miniet, sem er aðeins átján ára, fékk ekki peninga frá foreldrum sínum til að taka með sér. Hann dó þó ekki ráðalaus og hafði með sér öskju að kúbverskum vindlum eins og fjallað var um í HM í dag. Miniet kom ekkert við sögu gegn Slóveníu.

Miniet er byrjaður að græða á vindlasölunni því okkar menn í Zagreb keyptu nokkur stykki af honum. Miniet er þó ekki eini Kúbverjinn sem stundar vindlaviðskipti meðfram handboltaiðkun því fleiri samherjar hans í landsliðinu mættu með vindla til að selja í Zagreb. 

Leikur Íslands og Kúbu hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi. Leikurinn verður svo gerður ítarlega upp á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×