Skoðun

Val­kyrjur: Ekki falla á prófinu!

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Þegar ný ríkisstjórn tók við var settur saman stjórnarsáttmáli þar sem ríkisstjórnin lýsti því hvernig hún hygðist ná markmiðum sínum. Að sjálfsögðu eru menntamálin þar með, enda eru þau grundvallarforsenda fyrir því að hér geti t.d. þrifist þróað atvinnulíf og já, bara almennt þjóðlíf. Almennt telja stjórnmálamenn menntun vera forsendu framfara í samfélögum, þeir tala að minnsta kosti með slíkum hætti á hátíðarstundum.

Í þeim málaflokki ætlar ,,Valkyrjustjórnin“ að ná markmiðum sínum með...,,því að hefja sókn í menntamálum og bæta umhverfi nemenda og kennara. Lögð verður áhersla á íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum....Framhaldsskólar og háskólar fá stuðning til að efla menntun, nýsköpun og aðgengi um allt land, auk þess sem hugað verður sérstaklega að iðn- og verknámi, sí- og endurmenntun og raunfærnimati“ (Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, 2024).

Þetta eru stór orð. Á sama tíma (núna) er hins vegar allt botnfrosið í viðræðum Kennarasambands Íslands, ríkis og sveitarfélaga. Og hver er ástæðan? Jú, ,,hið opinbera“ vill ekki efna loforð sem það gaf menntunarstéttum þessa lands árið 2016 og kvað á um jöfnun launa á milli markaða, þ.e.a.s. að opinberir starfsmenn sem vinna við menntunarstörf (og eru sérfræðingar á sínu sviði) fái sömu launakjör og sérfræðingar á hinum almenna vinnumarkaði.

Stjórnmálamenn eru mjög góðir í því að gefa loforð, en því miður eru þeir alveg jafngóðir (jafnvel betri) í að svíkja þau. Hér virðist það vera raunin og framhaldsskólakennarar eru nú búnir að vera samningslausir frá því síðasta vor. Og eru fúlir, það er bara þannig. Enda finnst fólki ekkert gaman að fá loforð, sem ekki eru efnd.

Eiga kennarar svo bara að hefja ,,sókn í menntamálum“? Hvers konar ,,taktík“ er það eiginlega? Eiga allir að mæta brosandi í vinnuna og ekkert gerist í kjaramálum? Er þetta stuðningurinn til að ,,efla menntun og nýsköpun“? Er svona farið að því? Ó, nei.

Í raun má segja að kjaramál kennara (og þeirra einfalda beiðni um að orð skuli standa) sé fyrsta stóra verkefni nýrrar ríkisstjórnar. Ætlar hún að falla á því prófi? Vonandi ekki.

Það væri að minnsta kosti mun skemmtilegra að geta gefið stjórninni hreina tíu fyrir vel unnið verk(efni), þ.e.a.s. að semja við kennara og uppfylla gefin loforð. Eigum við ekki að stefna á það Kristrún, Inga og Þorgerður (fyrrum menntamálaráðherra)?

Koma svo...!

Höfundur er framhaldsskólakennari og annar trúnaðarmanna í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.




Skoðun

Sjá meira


×