ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Sindri Sverrisson skrifar 24. janúar 2025 16:47 Jovan Mitrovic er genginn til liðs við ÍBV. ÍBV ÍBV heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deildinni í fótbolta eftir að hafa unnið sér sæti þar á nýjan leik á síðustu leiktíð.
Serbneski knattspyrnumaðurinn Jovan Mitrovic kemur til ÍBV frá serbneska liðinu FK Indjija, þar sem hann hefur leikið síðustu 18 mánuði, í næstefstu deild. Jovan verður 24 ára á morgun, 25. janúar. Í tilkynningu ÍBV segir að Mitrovic hafi leikið stórt hlutverk hjá Indjija og spilað nær allar mínútur á þessari leiktíð en síðasti leikur hans var 14. desember. Hann var fyrirliði í átta af tuttugu leikjum. „Jovan er stór og sterkur miðvörður, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur verið fyrirliði í liði sínu í Serbíu undanfarin ár. Við erum gríðarlega spenntir fyrir þessum leikmanni,“ segir Þorlákur Árnason sem tók við af Hermanni Hreiðarssyni sem þjálfari ÍBV í október. ÍBV hafði áður fengið sænskan miðvörð, Mattias Edeland, og serbneska miðjumanninn Milan Tomic. Þá komu Omar Sowe og Arnór Ingi Kristinsson frá Leikni, Jörgen Pettersen frá Þrótti og Birgir Ómar Hlynsson að láni frá Þór. Það styttist óðum í það að keppni í Bestu deildinni hefjist en Eyjamenn byrja á útileik við Víkinga 7. apríl og spila svo við hina nýliðana, Aftureldingu, í Mosfellsbæ 13. apríl. Fyrsti heimaleikurinn er áætlaður 24. apríl, gegn Fram.
Besta deild karla ÍBV Mest lesið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Fleiri fréttir Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra Sjá meira