Innlent

Snjó­flóð féll hjá Ólafs­vík

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ólafsvík er á Snæfellsnesi.
Ólafsvík er á Snæfellsnesi. Vísir/Vilhelm

Snjóflóð féll hjá Ólafsvík á Snæfellsnesi. Talið er að enginn hafi lent í flóðinu.

„Það fór snjóflóð niður við Enni, milli Ólafsvíkur og Rifs,“ segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögreluþjónn á Vesturlandi.

Í fyrstu tilkynningu segir að enginn hafi lent í flóðinu en verið sé að gulltryggja það. 

Vegurinn hefur verið lokaður.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.

„Ég hef nú búinn að vera nokkur ár í þessu og ég held að þetta sé það þykkasta sem að ég hef séð,“ segir Svanur Tómasson, sem kom að snjóflóðinu.

Að sögn Svans féll snjóflóðið yfir „nýja veginn“ sem liggur undir Enni og út í sjó. Flóðið er um fjórir til fimm metrar á þykkt.

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×