FH og Fram byrjuðu úrslitakeppnina á sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2025 21:14 Rúnar Kárason var markahæstur í Framliðinu í kvöld. Vísir/Anton FH og Fram fögnuðu sigri í kvöld þegar úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta fór af stað.
Þetta var létt kvöld fyrir FH-ingana en Framarar þurftu að hafa meira fyrir sigri sínum á móti Haukum. Framarar unnu eins marks sigur á Haukum, 28-27, eftir að hafa verið yfir nánast allan leikinn. Fram var 16-14 yfir í hálfleik og komst síðan sjö mörkum yfir um miðjan seinni hálfleik, 24-17. Haukarnir komu sér aftur inn í leikinn með góðum endaspretti en það kom of seint og heimamenn fögnuðu sigri. Næsti leikur fer fram á Ásvöllum og þar þurfa Haukar að vinna ætli þeir ekki fara strax í sumarfrí. Rúnar Kárason skoraði sjö mörk fyrir Fram í kvöld og þeir Marel Baldvinsson og Reynir Þór Stefánsson voru með sex mörk hvor. Reynir gaf einnig átta stoðsendingar. Skarphéðinn Ívar Einarsson skoraði sex mörk fyrir Hauka og Birkir Snær Steinsson var með fimm mörk. Deildarmeistarar FH unnu öruggan ellefu marka sigur á HK, 32-21, eftir að hafa verið 15-9 yfir í hálfleik. Sigur FH-liðsins var mjög öruggur og þeir geta nú komist í undanúrslit með sigri í Kórnum í leik tvö. Jóhannes Berg Andrason skoraði sjö mörk fyrir FH í kvöld og Ásbjörn Friðriksson var með fimm mörk og fimm stoðsendingar. Daníel Freyr Andrésson varði 13 skot og 52 prósent skota sem á hann komu. Sigurður Jefferson Guarino var markahæstur hjá HK með fjögur mörk en HK þarf að spila miklu betri í leik tvö ætli þeir ekki að fara strax í sumarfrí.
Olís-deild karla FH Fram Haukar HK Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira