Opnaði sumarið með sólríkum stæl Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. maí 2025 16:01 Skúli Gunnlaugsson og Sigurður Árni á opnun þess síðarnefnda í Ásmundarsal. Ásmundarsalur Margt var um manninn á sólríkri opnun einkasýningar Sigurðar Árna „Litarek“ í Ásmundarsal laugardaginn 3. maí. Á meðal gesta mátti sjá fjölbreyttan hóp listunnenda, listamanna, safnara og fólki úr menningar-og listalífi borgarinnar sem nutu sín innan um litrík og leikandi verk Sigurðar.
Stöðug og spennandi leit að litnum „Í Ásmundarsal sýni ég stór verk sem hafa öll óræða vídd sem er á milli strigans og litaflatarins. Í þessum nýju verkum skil ég svo eftir ósnertan striga allan hringinn sem verður svona skemmtileg ögrun vegna þess að með því afbyggi ég hugmyndina sem ég er byrjaði með. Þannig bý ég til einskonar þrívídd, eða nýja vídd sem ég brýt svo niður á sama tíma,“ segir Sigurður Árni. Hann hefur í fjölda ára einbeitt sér að rýmisskynjun í verkum sínum og skoðað hvernig uppbrot á hinni vanabundnu skynjun getur haft verkun sína langt út fyrir myndflötinn. Á einkasýningu sinni í Ásmundarsal heldur hann rannsókn sinni áfram og sýnir stórskala málverk og speglaverk. „Það er skemmtilegt að kljást við að leita að litnum sem maður er með einhvers staðar í kollinum eða sér fyrir sér í huganum, sem er síðan ekkert alltaf svo auðvelt að framkalla í rauninni.“ Fór á Feneyjartvíæringinn og er með verk í Pompidou Sigurður Árni hefur starfað jöfnum höndum í Reykjavík og Frakklandi frá því hann lauk listnámi í París árið 2991. Verk eftir Sigurð Árna er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi sem og í opinberum söfnum og einkasöfnum víða í Evrópu. Má þar nefna að nýlega eignaðist nútímalistasafnið Centre Pompidou í París verk eftir listamanninn. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu árið 1999 og árið 2020 var stór yfirlitssýning sett upp í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin stendur til 12. maí og er aðgangur ókeypis. Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: Ólöf Rut og Helga sýningarstjórar í Ásmundarsal.Ásmundarsalur Sigurður, Elísabet og Pétur Freyr eigendur Vest, Skúli Gunnlaugs og Ólöf Sigríður.Ásmundarsalur Svanhildur Konráðsdóttir í góðum félagsskap.Ásmundarsalur Einar Falur og Þorsteinn J hressir og kátir. Ásmundarsalur Harpa og Helga velja á milli uppáhaldsverka.Ásmundarsalur Gestir í góðum fíling!Ásmundarsalur Sigurður Árni tekur sig vel út í bók frá Ásmundarsal.Ásmundarsalur Listunnandi í geggjuðum jakka.Ásmundarsalur Verkin eru litrík og stór!Ásmundarsalur Gunnhildur Melsteð arkitekt hjá Kurtogpí.Ásmundarsalur Safnstjórarnir Ólöf Kristín og Heiða á góðu spjalli.Ásmundarsalur Sigurður og Ingibjörg hjá Listasafni Íslands.Ásmundarsalur Helga Ósk Hlynsdóttir, Harpa Björnsdóttir og Gunnhildur Melsteð.Ásmundarsalur Verkin speglast í hvert öðru.Ásmundarsalur Gestir inni í listaverkinu.Ásmundarsalur Gestur fangar sýninguna á símann.Ásmundarsalur Sigurður Árni speglast hér í eigin verki.Ásmundarsalur Það er margt að skoða frá mismunandi sjónarhornum í Ásmundarsal.Ásmundarsalur Skúli Gunnlaugsson og Sigurður Árni á spjalli. Sigurður Árni mætti í gulri skyrtu í stíl við sólina úti.Ásmundarsalur
Sýningar á Íslandi Myndlist Menning Mest lesið Big Pussy er látinn Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira