Viðskipti erlent

Bretar fyrstir til að semja við Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í febrúar.
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í febrúar. AP/Carl Court

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í dag „sögulegan“ viðskiptasamning við Bretland sem opna ætti á aukinn útflutning fyrir Bandaríkjamenn. Bretar urðu þar með fyrstir til að semja við Trump eftir að hann boðaði umfangsmikla tolla í síðasta mánuði.

Trump segir að þó eigi eftir að klára samninginn að fullu og segja fjölmiðlar ytra að tilkynningin virðist frekar snúast um drög að viðskiptasamningi en kláruðum samningi.

Samkvæmt þessum drögum munu bæði Bretar og Bandaríkjamenn lækka tolla á ákveðnar vörur og gera almenn samkomulög um tolla á öðrum sviðum. Bandaríkjamenn munu meðal annars lækka tolla á stál, ál og bíla frá Bretlandi.

Almennur tíu prósenta tollur Trumps mun þó áfram standa á innflutning frá Bretlandi. Tolur á breska bíla mun lækka úr 27,5 prósentum í tíu.

Bretar munu lækka tolla á landbúnaðarafurðir frá Bandaríkjunum, gos, morgunkorn og aðrar vöru.

New York Times segir að viðræður um samninginn gætu tekið nokkra mánuði og að slíkar viðræður geti verið flóknar og erfiðar. Margt geti farið úrskeiðis.

Bretland var ellefti stærsti viðskiptaaðili Bandaríkjanna á fyrsta fjórðungi ársins. Viðskipti við Bretland voru 2,9 prósent af öllum viðskiptum Bandaríkjanna á ársfjórðungnum.

Mest flytja Bandaríkjamenn lyf inn frá Bretlandi. Trump hefur boðað tolla á slíkar vörur en Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að þessi nýi samningur muni gera Bretum kleift að fá sérmeðferð þar.

Trump var spurður í dag hvort samningurinn hefði áhrif á tolla á kvikmyndir sem framleiddar eru í öðrum löndum, sem Trump hefur boðað.

Forsetinn svaraði ekki beint en sagði þó að James Bond þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur.

Vill semja við fleiri

Eins og frægt er hefur Trump sett almennan tíu prósenta toll á allan innflutning til Bandaríkjanna. Hann hefur einnig boðað umfangsmikla tolla á ríki sem selja meira til Bandaríkjanna en þau kaupa en þeim tollum var frestað um níutíu daga, eftir að þeir voru fyrst boðaðir.

Þetta hefur Trump sagst vilja nota til að gera nýja viðskiptasamninga við ríki heimsins en það hefur hingað til ekki skilað miklum árangri.

Sjá einnig: Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla

Þegar Trump var spurður út í minni umferð í bandarískum höfnum sagði forsetinn það jákvæðar fréttir.

„Það þýðir að við töpum minna af peningum.“

Fregnir hafa borist af töluverðum samdrætti á innflutningi en í grein NYT segir að svo virðist sem bandarískur útflutningur sé einnig í vandræðum. Það eigi sérstaklega við útflutning á landbúnaðarafurðum til Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×