Erlent

Alþjóðaglæpa­dómstóllinn lamaður vegna þvingana Banda­ríkjanna

Kjartan Kjartansson skrifar
Karim Khan, yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins, sem sætir bandarískum refsiaðgerðum vegna handtökuskipunar sem var gefin út á hendur leiðtogum Ísraels.
Karim Khan, yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins, sem sætir bandarískum refsiaðgerðum vegna handtökuskipunar sem var gefin út á hendur leiðtogum Ísraels. AP/Marwan Ali

Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag kemst ekki inn í tölvupóstinn sinn og bankareikningar hans hafa verið frystir vegna refsiaðgerða Bandaríkjastjórnar. Félagasamtök hafa hætt að vinna með dómstólnum og starfsmenn hans eiga yfir höfði sér handtöku ef þeir ferðast til Bandaríkjanna.

Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum lagði refsiaðgerðir á Karim Khan, yfirsaksóknara Alþjóðaglæpadómstólsins í febrúar eftir að dómarar við réttinn gáfu út handtökuskipan á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísraels í vetur.

Dómararnir töldu rökstuddan grun um að ísraelsku ráðamennirnir kynnu að hafa framið stríðsglæpi með því að stöðva mannúðaraðstoð til Gasa og að ráðast vísvitandi á óbreytta borgara. Þeir neita allri sök.

Starfsmenn og bandamenn dómstólsins segja AP-fréttastofunni að stofnunin eigi nú sífellt erfiðara með að sinna daglegum störfum, hvað þá að leita réttlætis fyrir fórnarlömb stríðsglæpa eða þjóðarmorðs.

Microsoft lokaði pósthólfi saksóknarans

Bandarísku refsiaðgerðirnar fela meðal annars í sér að einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki sem aðstoða Khan á einhvern hátt geta sætt sektum og jafnvel fangelsisdómum.

Fyrir vikið lokaði bandaríski tæknirisinn Microsoft póstfangi Khan. Bankareikningar hans í heimalandi hans Bretlandi hafa jafnframt verið frystir.

Lögmenn hafa sagt bandarískum starfsmönnum dómstólsins að þeir gætu verið handteknir ef þeir ferðast heim til sín til að heimsækja fjölskyldu eða vini. Sex háttsettir starfsmenn eru sagðir hafa hætt hjá dómstólnum af ótta við það.

Höfuðstöðvar Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag í Hollandi. Bandarískir starfsmenn þar lifa í ótta við að vera handteknir ef þeir fara heim til sín.AP/Omar Havana

Dómstóllinn er sérlega háður ýmsum félagasamtökum og verktökum, meðal annars við að afla sannana og vitna í málum. Slík samtök hafa nú dregið sig í hlé af ótta við að verða skotmörk Bandaríkjastjórnar. Ein mannréttindasamtök í Bandaríkjunum svara jafnvel ekki tölvupóstum frá dómstólnum lengur af þessum sökum.

Rannsókn á stríðsglæpum í Súdan strönduð

Þótt refsiaðgerðirnar tengist ákvörðuninni ísraelsku ráðherrana og hernaðinn á Gasa lama þær störf dómstólsins í öðrum málum. Þannig sigldi rannsókn dómstólsins á stríðsglæpum og þjóðarmorði í Súdan í strand. Handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur Omar al-Bashir, forseta Súdan, fyrir þjóðarmorð.

Starfsmenn dómstólsins eru sagðir efins um að hann lifi af fjögurra ára kjörtímabil núverandi Bandaríkjaforseta.

Hvorki Bandaríkin né Ísrael eiga aðild að Alþjóðaglæpadómstólnum og hvorugt ríkjanna viðurkennir lögsögu hans yfir þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×