Innlent

Setja rúma tvo milljarða í stækkun leik­skóla

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Leikskólabörn að leik.
Leikskólabörn að leik. Vísir/Vilhelm

Borgarráð samþykkti í dag að ráðast í átak til að fjölga leikskólaplássum í borginni um 162 með því að byggja fjórtán nýjar kennslustofur við sex leikskóla víða um borgina ásamt tengibyggingum og lóðaframkvæmdum.

Í tilkynningu frá borginni segir að unnið hafi verið að því undanfarin ár að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík á sama tíma og endurnýjun og viðhald á leikskólahúsnæði borgarinnar hafi staðið yfir. Verkefnið „Brúum bilið“ haldi áfram.

„Verkefnið mun skapa 162 ný leikskólapláss og bæta aðstöðu starfsfólks á nokkrum leikskólum.“

„Leikskólarnir sem um ræðir eru Grandaborg, Hólaborg, Árborg, Jörfi, Maríuborg og Vesturborg. Með framkvæmdunum verða eldri og minni kennslustofur teknar úr notkun, en heildarfjölgun leikskólaplássa verður engu að síður veruleg.“

„Það er mikið keppikefli að fjölga leikskólaplássum til að bregðast við þörfum fjölskyldna og skapa betri starfsaðstæður fyrir starfsfólk leikskólanna,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður 2,1 milljarður króna, en þar af eiga 150 milljónir að fara í lóðaframkvæmdir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×