Upp­gjörið: Stjarnan - Tinda­stóll 91-86 | Oddaleikur um Ís­lands­meistara­titilinn stað­reynd

Árni Jóhannsson skrifar
Stjarnan Tindastóll. Leikur 2 í úrslitakeppninni. Bónus deild karla 2025.
Stjarnan Tindastóll. Leikur 2 í úrslitakeppninni. Bónus deild karla 2025.

Stjarnan sýndi gífurlegan karakter þegar þeir sneru við erfiðri stöðu í hálfleik og náðu í sigur í leik fjögur um Íslandsmeistaratitilinn. Leikar enduðu 91-86 þar sem Stólarnir leiddur lungan úr leiknum en Stjarnan sneri við taflinu og tryggði oddaleikinn í næstu viku.

Tindastóll byrjaði leikinn mikið betur og þá meina ég að þeir hafi verið mikið mun betri. Hver þristurinn rak annann og áður en við var litið voru Stólarnir komnir 12 stigum yfir og Baldur búinn ða brenna einu leikhléi þegar um tvær og hálf mínúta var liðin. Stólarnir héldu áfram og héldu við öruggu forskoti með magnaðri hittni fyrir utan ásamt því að gera allt erfitt fyrir heimamenn. Staðan var 19-32 í lok fyrsta leikhluta og þó að Stjarnan hafi náð upp takti í sókna<rleiknum þá voru engin stopp hjá Stjörnunni.

Stjarnan reyndi að keyra sig í gang en Stólarnir lifðu af áfhlaupið sem Stjarnan reyndi að koma sér af stað í. Stjarnan sem náði að stöðva aðgerðir gestanna og komu muninum niður í sjö stig en komust ekki lengra þar sem Stólarnir náðu að komast aftur af stað og náðu að auka muninn upp í 12 stig þegar gengið var til búningsherbergja. 

Staðan 44-56 en það sem skipti mestu máli voru fréttir af Shaquille Rombley. Hann hafði farið til búningsherbergja um miðjan annan leikhlutann með verki fyrir brjóstinu og átti erfitt með andardrátt. Hann þurfti að fara á sjúkrahús en var í stöðugu ástandi þegar fréttir af honum bárust.

Stólarnir byrjuðu örlítið betur í seinni hálfleik en Stjarnan steig harðar fram í varnarleiknum. Tindastóll hafði skorað sjö stig úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik og það var lokatalan í þeim tölfræði þætti í lok leiks. Sú staðreynd, meðal annars, varð til þess að munurinn fór hríðlækkandi en það gekk hægt fannst manni því þegar stoppin komu þá fylgdu ekki körfur í kjölfarið. Stólarnir hinsvegar, voru í villuvandræðum með nokkra menn, áttu mjög erfitt að með að skora til að lifa af áhlaupið og þegar upp var staðið í þriðja leikhluta var Stjarnan búin að jafna metið 73-73 en Jase Febres jafnaði þegar minna en hálf mínúta var eftir af leikhlutanum.

Stjarnan komst yfir, loksins, í upphafi fjórða leikhluta þegar Jase setti niður þrist úr neyðarskoti og kom stöðunni í 76-75. Við það rönkuðu Stólarnir við sér eða öllu heldur Deidrick Basile. Hann setti niður fimm stig í röð og virtist vera að koma í veg fyrir það að einvígið myndi fara aftur í Skagafjörðinn. Munurinn orðinn 76-81 og allt í blóma fyrir Stólana. En þá fóru menn að týnast út af með fimm villur og Stjarnan náði að herða varnarleikinn sinn enn meira. Þeir unnu síðustu fimm mínúturnar 15-5, komust yfir þegar 1:55 voru eftir af leiknum og náðu að halda gestunum í skefjum. Jase Febrese var í einu orði sagt frábær í seinni hálfleik og skoraði 24 stig í hálfleiknum. Tindastóll náði ekki að setja niður þrista á lokamínútunni og Stjarnan gekk frá leiknum.

Við förum því í oddaleik á miðvikudaginn þar sem annaðhvort liðið verður Íslandsmeistari. Leikurinn hefst kl. 20:00 og það ætti enginn að missa af þessu.

Atvik leiksins.

Það verður að vera þegar Shaquille Rombley yfirgaf Umhyggjuhöllina í sjúkrabíl. Hann kenndi til brjóstverkja og átti erfitt með andardrátt en það bárust góðar fréttir í hálfleik af heilsu hans. Það er hægt að færa rök fyrir því að þetta atvik hafi þjappað Stjörnumönnum saman og skilað sigrinum þannig.

Stjörnur og skúrkar

Virkilega vel leikinn leikur. Stjarna leiksins var Jase Febrese, sem skoraði 24 stig í seinni hálfleik. Hann kom Stjörnunni yfir í tvígang og mann leið eins og allar körfurnar hans skiptu máli. Hilmar Smári og ægir skiluðu líka góðri vakt.

Adomas Drungilas, Giannis Agravannis og Sigtryggur Arnar voru allir í villuvandræðum í síðari hálfleik. Það er leitt fyrir Stólana því mögulega gátu þeri ekki beitt sér eins og þeir vildu. Deidrick Basile og Sadio Doucoure voru stigahæstir hjá Tindastól með 28 og 24 stig en það dró af þeim síðarnefnda í seinni hálfleik.

Umgjörð og stemmning

Í einu orði sagt frábær stemmning. Ég veit ekki hvort ég hefði heyrn ef ekki hefði notið við eyrnartappa en báðar sveitir voru á fullu allan tímann.

Dómararnir

Þeir áttu bara fínan leik. Auðvitað einhver atiriði sem hægt er að setja út á. Fimmta villan á Drungilas var mögulega á Sigtrygg en það hefði mögulega skipt máli í lok leiks. Það er þó ekki hægt að fullyrða um það.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira