Neytendur

Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn

Árni Sæberg skrifar
Parka lausnir, sem sjá meðal annars um innheimtu bílastæðagjalda á Höfðatorgi, hlutu hæstu sektina.
Parka lausnir, sem sjá meðal annars um innheimtu bílastæðagjalda á Höfðatorgi, hlutu hæstu sektina. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki sem innheimta gjöld fyrir notkun bílastæða. Upplýsingagjöf og viðskiptahættir fyrirtækjanna voru ekki talin í samræmi við lög og hæsta sektin nam einni milljón króna.

Gjaldskyld bílastæði hafa verið talsvert milli tannanna á fólki síðan þau tóku að spretta upp eins og gorkúlur um allt land. Fyrirtæki sem reka bílastæðin hafa verið harðlega gagnrýnd og Félag íslenskra bifreiðaeiganda benti Neytendastofu á það í fyrra að tilefni gæti verið til að rannsaka viðskiptahætti þeirra.

„Neytendastofa er búin að staðfesta móttöku og okkur skilst að það sé farin rannsókn í gang,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtali við fréttastofu á sínum tíma. Nú hefur rannsókn Neytendastofu borið ávöxt.

Parka hlaut hæstu sektina

Á vef Neytendastofu segir að stofnunin hefði komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin hefðu brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti sem og reglum um verðmerkingar með því að veita ekki upplýsingar um öll gjöld tengd stæðunum.

Fyrirtækin sem um ræðir eru Isavia, vegna gjaldheimtu við Reykjavíkurflugvöll, Parka lausnir ehf., Easypark og Green parking ehf. Sektirnar voru á bilinu 200 þúsund krónur til einnar milljónar króna, sem Parka ber að greiða.

Afmörkun ekki nægilega skýr

Þá hafi Neytendastofa talið um að ræða brot á lögum í þeim tilvikum þar sem afmörkun gjaldskyldra bílastæða var ekki nægilega skýr auk þess sem það teldust villandi viðskiptahættir að láta líta út fyrir að sjálfvirk greiðslukerfi eða gjaldtaka væru til staðar, án þess að taka fram að slíkt þyrfti að virkja sérstaklega eða kerfið ekki til staðar.

Loks hafi stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að í einu tilfelli hafi fyrirtæki, Parka, brotið gegn reglugerð um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir með því að upplýsa neytendur ranglega um að þjónusta þess sé endurgjaldslaus.


Tengdar fréttir

Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna

Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×