Körfubolti

Durant var upp á sviði þegar hann frétti af skiptunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant sést hér upp á sviði á Fanatics hátíðinni í New York með hljóðnema í hendi. Hann fékk þarna fréttirnar um að hann væri orðinn leikmaður Houston Rockets.
Kevin Durant sést hér upp á sviði á Fanatics hátíðinni í New York með hljóðnema í hendi. Hann fékk þarna fréttirnar um að hann væri orðinn leikmaður Houston Rockets. Getty/Slaven Vlasic

Kevin Durant var upp á sviði í dag og fyrir framan stóran hóp af fólki á Fanatics hátíðinni þegar hann frétti að búið væri að skipta honum til Houston Rockets.

Ein af stóru leikmannaskiptum sumarsins í NBA deildinni í körfubolta voru gerð opinber í dag. Skúbbarar deildarinnar voru fljótir að koma fréttunum út á samfélagsmiðla sína.

Phoenix Suns ákvað í dag að taka tilboði Houston Rockers í stjörnuleikmann sinn. Jalen Green, Dillon Brooks og tíundi valréttur í komandi nýliðavali fara í staðinn til Phoenix.

Durant verður á ný leikmaður undir stjórn Ime Udoka sem þjálfaði hann hjá Brooklyn Nets.

Þetta þýddi að Kevin Durant sjálfur var fyrir framan fullt af fólki með símana á lofti þegar hann frétti af vistaskiptum sínum.

Durant virkaði mjög hissa á fréttunum eins og hann hafi ekki vitað neitt að þetta væri að ganga í gegn á þessum tímapunkti.

Hér fyrir neðan má sjá hann fá fréttirnar en það er hægt að nálgast myndbandið með því að fletta.

NBA

Tengdar fréttir

Kevin Durant fer til Houston Rockets

Eftir marga vikna vangaveltur er loksins ljóst hvar stórstjarnan Kevin Durant spilar í NBA deildinni í körfubolta á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×