Skoðun

Upp­bygging hjúkrunar­heimila

Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Áratugum saman hefur verið mikill skortur á hjúkrunarheimilum þannig að margir eldri borgarar hafa þurft að bíða allt of lengi í örvæntingu eftir hjúkrunarrými. Fyrri ríkisstjórnir hafa sýnt skeytingarleysi gagnvart þessum vanda og þannig horft framhjá þjáningu aldraðra. Biðlistar héldu áfram að lengjast og um tíma biðu um 700 manns eftir plássi.

Þetta er hrein og klár vanræksla sem hefur kostað aldraða og fjölskyldur þeirra ómælda þjáningu. Ný ríkisstjórn er staðráðin í að gera betur undir forystu Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og hefur snúið vörn í sókn með kraftmiklum aðgerðum. Framkvæmdaráform sem höfðu staðið í stað árum saman eru loksins komin á fullan skrið um land allt.

Mikil uppbygging komin af stað

Hjúkrunarheimili eru og munu rísa á fjölmörgum stöðum. Ás í Hveragerði mun reisa 44 ný rými. Í gömlu höfuðstöðvum Icelandair við Nauthólsveg verður húsnæði endurinnréttað fyrir 87 rými og í Þursaholti á Akureyri mun rísa nýtt hjúkrunarheimili með 80 rýmum. Þá hefjast framkvæmdir brátt á Húsavík. Í Boðaþingi verður lokið við byggingu nýs hjúkrunarheimilis í sumar með 64 rýmum og á Nesvöllum verður nýtt heimili með 50 rýmum fullklárað í nóvember.

Reist verður nýtt hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ með allt að 66 hjúkrunarrýmum samkvæmt samkomulagi sem félags- og húsnæðismálaráðherra og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrita vonandi á morgun, þriðjudag. Fleiri verkefni eru þegar komin á fullan skrið, þeirra á meðal ný hjúkrunarheimili í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og víðar um landið.

Þetta er raunverulegur árangur sem skiptir eldri borgara og fjölskyldur þeirra miklu máli. Þess utan léttir uppbygging hjúkrunarheimila á sjúkrahúsunum og sparar í raun útgjöld því mun dýrara er að vista fólk á sjúkrahúsum en á hjúkrunarheimilum. Þá er að sjálfsögðu mun heimilislegra fyrir fólk að búa á hjúkrunarheimilum en á spítala.

Sýnilegur árangur á stuttum tíma

Ríkisstjórnin hefur einfaldað kerfið. Nú sér ríkið alfarið um að fjármagna uppbyggingu hjúkrunarheimila en áður stóðu sveitarfélög undir 15 prósentum kostnaðarins. Undir forystu félags- og húsnæðismálaráðherra starfar nú stýrihópur um uppbyggingu hjúkrunarheimila sem tryggir að höggvið verði á hnútinn í fjölmörgum verkefnum þannig að þau dragist ekki á langinn. Þetta flýtir fyrir framkvæmdum og gerir sveitarfélögum auðveldara að koma til móts við þarfir eldri íbúa sinna.

Á næstu fjórum árum mun biðlistar loksins styttast og fleiri fá þá umönnun sem þau þurfa. Ríkisstjórnin hefur tekið af skarið og sýnt að hún tekur málefni eldri borgara alvarlega. Undir verkstjórn Valkyrjanna mun eldra fólk njóta þeirrar virðingar og þjónustu sem það verðskuldar.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.




Skoðun

Sjá meira


×